Kjóavellir-Garðabæjarhluti, dsk breytingar
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (866). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla, samkvæmt 1. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 3. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar en engar athugasemdir bárust við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Samþykkt tillaga skal send til afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs þar sem um er að ræða sameiginlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar fyrir Kjóavelli.
Bæjarráð Garðabæjar
02
14.(1923). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla, samkvæmt 1. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 3. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar en engar athugasemdir bárust við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Samþykkt tillaga skal send til afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs þar sem um er að ræða sameiginlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar fyrir Kjóavelli.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu að lokinni auglýsingu en athugsemdafresti lauk 30.mars.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar afgreiðslunni til bæjarstjórnar. Tillagan skal einnig send skipulagsráði/bæjarstjórn Kópavogsbæjar til afgreiðslu þar sem að um sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogs er að ræða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (861). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæði við Kjóavelli . Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Þar sem um sameignlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar er að ræða þarf að liggja fyrir samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu.
Bæjarráð Garðabæjar
06
3. (1912). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæði við Kjóavelli . Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Þar sem um sameignlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar er að ræða þarf að liggja fyrir samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem gerir m.a. ráð fyrir breytingum á legum byggingarreita ofan götu í Rjúpnahlíð og svæði fyrir heygeymslu. Ekki er gert ráð fyrir breytingum innan lögsögu Kópavogs í þessari tillögu. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillögunni vísað til umfjöllunar hjá skipulagsráði Kópavogs.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar að Kjóavöllum en um er að ræða sameiginlegt skipulag með Kópavogi. Fallið er frá forkynningu samkvæmt heimild í 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
09
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar að Kjóavöllum en um er að ræða sameiginlegt skipulag með Kópavogi. Fallið er frá forkynningu samkvæmt heimild í 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar að Kjóavöllum sem er sameignleg með Kópavogsbæ. Breytingin felst í 9 atriðum sem eru þau helst að byggingarreitir hesthúsa sem standa norðan við götur í Rjúpnahæðarhverfi færast ofar í lóðirnar og hámarkshæð húsa verði 1 ½ hæð í stað 1 hæðar, gert verði ráð fyrir umferðartengingum á milli botnlanga og heygeymslusvæðum á tveim stöðum. Aðrar breytingar eru minniháttar og hafa verið mótaðar í samráði við hestamannafélagið Sprett. Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Fallið er frá forkynningu tillögunnar þar sem að megininntak hennar hefur m.a. verið kynnt á almennum félagsfundi hjá Hestamannafélaginu Spretti á síðasta ári.