Beint í efni

7. (866). fundur

16.04.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

7. (866). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

16.04.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. apríl 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2004004F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 7/4 ´20.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili. Gunnar gerði grein fyrir vinnu á sviðum bæjarins sem nú stendur yfir við mótun aðgerða vegna fjárhagslegra áhrifa af Covid19 á rekstur bæjarins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Sigurður vék einnig að vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Hnoðraholt og Vetrarmýri. Þá ræddi Sigurður 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 3. tl., bréf ÍSÍ varðandi áhrif Covid 19 á íþróttahreyfinguna, 6. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags.

Gunnar Einarsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Bæjargils vegna atvinnuhúsalóðar við Gilsbúð.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Sara Dögg spurði um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 3. tl., bréf ÍSÍ varðandi áhrif Covid 19 á íþróttahreyfinguna, 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs og 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk, 6. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Gunnar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og sagði að staða málsins verði kynnt á fundi bæjarráðs nk. þriðjudag.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs, 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Þá ræddi Sigurður tillögu að deiliskipulagi sem er í vinnslu fyrir Vetrarmýri.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga. Áslaug Hulda vék að ársreikningi Garðabæjar og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Ársreikningur Garðabæjar 2019 er unnin eftir ströngustu reglum um gerð ársreikninga sveitarfélaga. Hann hlaut fyrirvaralausa áritun endurskoðanda og allir bæjarfulltrúar staðfestu hann með undirritun sinni. Reikningurinn staðfestir sterka stöðu bæjarsjóðs.

Fjármálaeftirlitið fær árlega, lögum samkvæmt, sendan lista yfir fruminnherja Garðabæjar. Á listanum eru bæjarfulltrúar, bæjarstjóri, bæjarritari, fjármálastjóri, allir sviðsstjórar, aðalbókari ásamt endurskoðanda sveitarfélagsins. Þessi listi er síðan aðgengilegur öllum á heimasíðu FME.

Að bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans fullyrði í blaðagrein að stjórnendur sveitarfélagsins séu undanskildir reglum og upplýsingaskyldu um innherja og tengda aðila er alrangt. Það er óábyrgt og óásættanlegt, hvar svo sem fólk er statt í pólitík, að vegið sé að starfsheiðri starfsmanna og endurskoðanda sveitarfélagsins með ósannindum og rangfærslum eins og þar var gert.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Fulltrúar Garðabæjarlistans undirstrika inntak umræddar blaðagreinar Ársreikningur til gagns sem er fyrst og fremst að varpa ljósi á mikilvægi gagnsæisins í allri framsetningu og um leið mikilvægi þess að standa faglega að fjárhagsáætlunargerð. Í lýðræðislegu samfélagi gerum við kröfu um eins raunsanna mynd af veruleikanum og hægt er. Vanáætlanir gerðar til þess að geta hrósað sér fyrir afbragðs fjármálastjórn er vond pólitík.“

Almar Guðmundsson, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og framlagðar bókanir.

Gunnar Einarsson, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og framlagðar bókanir.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2003040F

02

Fundargerð skipulagsnefndar frá 3/4 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., tillögu í vinnslu er varðar deiliskipulag fyrir Vetrarmýri.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2004007F

03

Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/4 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á stígakerfi í upplandinu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi sorphirðumál.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á stígakerfi í upplandinu.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á stígakerfi í upplandinu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sorphirðumál og svör við spurningum. Þá ræddi Jóna stöðu mála varðandi breytingar á skipulagi Gálgahrauns og 2. tl., tillögur um breytingar á stígakerfi í upplandinu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju sorphirðumál og svör við spurningum.

Sigurður Guðmundsson, ræddi tillögur um breytingar á skipulagi Gálgahrauns og 2. tl., tillögur um breytingar á stígakerfi í upplandinu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001426

04

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/3 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001494

05

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 25/3 ´20.

Björg Fenger, ræddi málefni skíðasvæðanna og greindi frá aðsókn að skíðasvæðum fram að lokun vegna samkomubanns.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

06

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 30/3 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi málefni Sorpu bs. og kynningu á fjárhagslegri endurskipulagningu og skýrslu um heimilisorp.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi tillögur að aðgerðaráætlun vegna fjárhagslegra endurskipulagningar og fyrirhugaða kynningu á málinu. Jóna ræddi einnig kynningu á skýrslu sem er í vinnslu um stöðu heimilissorps.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2004142

07

Tillaga Garðabæjarlistans um vinnureglu þegar kemur að viðburðum líkt og opnunum og upphafi framkvæmda (skóflustungum) á vegum Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir þá vinnureglu að á undan eða eftir að Garðabær hefur haldið opnun eða upphaf framkvæmda (skóflustungu) fyrir meirihlutann verði önnur slík haldin fyrir minnihlutann.“

Greinargerð:

Mikilvægt er að tryggja jafnræði bæjarfulltrúa. Á það líka við þegar að opnanir og athafnir við upphaf framkvæmda á vegum sveitarfélagsins eiga sér stað. Minnihlutinn vill gjarnan fá tækifæri til að samgleðjast með starfsmönnum og íbúum líkt og hefur tíðkast hjá meirihlutanum.“

Sigurður Guðmundsson, tók til máls um framlagða tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framlagða tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framlagða tillögu.

Gunnar Einarsson, tók til máls um framlagða tillögu.

Tillagan felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 2004084

08

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup 2019.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

„Fyrirspurn um kaup á vöru og þjónustu frá stærstu birgjum á árinu 2019.

Fyrirspurn þessi varðar heildarkaup frá birgjum hvort heldur þau eru gjaldfærð eða eignfærð í bókhaldi.“

Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Í lok fundar var fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundargerðin verður send fundarmönnum í tölvupósti en undirrituð þegar bæjarfulltrúar koma saman að nýju samkvæmt hefðbundnu fundarformi.