Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 7/4 ´20.

Málsnúmer 2004004F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (866). fundur

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili. Gunnar gerði grein fyrir vinnu á sviðum bæjarins sem nú stendur yfir við mótun aðgerða vegna fjárhagslegra áhrifa af Covid19 á rekstur bæjarins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Sigurður vék einnig að vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Hnoðraholt og Vetrarmýri. Þá ræddi Sigurður 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 3. tl., bréf ÍSÍ varðandi áhrif Covid 19 á íþróttahreyfinguna, 6. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags.

Gunnar Einarsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Bæjargils vegna atvinnuhúsalóðar við Gilsbúð.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Sara Dögg spurði um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, 3. tl., bréf ÍSÍ varðandi áhrif Covid 19 á íþróttahreyfinguna, 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs og 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk, 6. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030- Vífilsstaðaland-rammahluti aðalskipulags. Gunnar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og sagði að staða málsins verði kynnt á fundi bæjarráðs nk. þriðjudag.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs, 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breytinga á landnotkun lóða við Bergás og Brekkuás fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Þá ræddi Sigurður tillögu að deiliskipulagi sem er í vinnslu fyrir Vetrarmýri.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum sem fólkvangs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga. Áslaug Hulda vék að ársreikningi Garðabæjar og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Ársreikningur Garðabæjar 2019 er unnin eftir ströngustu reglum um gerð ársreikninga sveitarfélaga. Hann hlaut fyrirvaralausa áritun endurskoðanda og allir bæjarfulltrúar staðfestu hann með undirritun sinni. Reikningurinn staðfestir sterka stöðu bæjarsjóðs.
Fjármálaeftirlitið fær árlega, lögum samkvæmt, sendan lista yfir fruminnherja Garðabæjar. Á listanum eru bæjarfulltrúar, bæjarstjóri, bæjarritari, fjármálastjóri, allir sviðsstjórar, aðalbókari ásamt endurskoðanda sveitarfélagsins. Þessi listi er síðan aðgengilegur öllum á heimasíðu FME.
Að bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans fullyrði í blaðagrein að stjórnendur sveitarfélagsins séu undanskildir reglum og upplýsingaskyldu um innherja og tengda aðila er alrangt. Það er óábyrgt og óásættanlegt, hvar svo sem fólk er statt í pólitík, að vegið sé að starfsheiðri starfsmanna og endurskoðanda sveitarfélagsins með ósannindum og rangfærslum eins og þar var gert.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Fulltrúar Garðabæjarlistans undirstrika inntak umræddar blaðagreinar Ársreikningur til gagns sem er fyrst og fremst að varpa ljósi á mikilvægi gagnsæisins í allri framsetningu og um leið mikilvægi þess að standa faglega að fjárhagsáætlunargerð. Í lýðræðislegu samfélagi gerum við kröfu um eins raunsanna mynd af veruleikanum og hægt er. Vanáætlanir gerðar til þess að geta hrósað sér fyrir afbragðs fjármálastjórn er vond pólitík.“

Almar Guðmundsson, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og framlagðar bókanir.

Gunnar Einarsson, ræddi 17. tl., tilkynningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um ákvörðun varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga og framlagðar bókanir.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.