Tillaga Garðabæjarlistans um vinnureglu þegar kemur að viðburðum líkt og opnunum og upphafi framkvæmda (skóflustungum) á vegum Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (866). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir þá vinnureglu að á undan eða eftir að Garðabær hefur haldið opnun eða upphaf framkvæmda (skóflustungu) fyrir meirihlutann verði önnur slík haldin fyrir minnihlutann.“
Greinargerð:
Mikilvægt er að tryggja jafnræði bæjarfulltrúa. Á það líka við þegar að opnanir og athafnir við upphaf framkvæmda á vegum sveitarfélagsins eiga sér stað. Minnihlutinn vill gjarnan fá tækifæri til að samgleðjast með starfsmönnum og íbúum líkt og hefur tíðkast hjá meirihlutanum.“
Sigurður Guðmundsson, tók til máls um framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framlagða tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framlagða tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls um framlagða tillögu.
Tillagan felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).