Bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna vaxtarmarka á Álfsnesi, dags. 28.05.20
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
2. (861). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út.
Bæjarráð Garðabæjar
04
3. (1912). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja með vísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram breyting á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 og meðfylgjandi umhverfsisskýrsla sem samþykkt hefur verið í svæðisskipulagsnefnd. Breytingin gerir ráð fyrir útfærslu vaxtarmarka svæðisskipulagsins í Álfsnesi á Kjalarnesi sem er innan lögsögu Reykjavíkur. Lögð fram gögn málsins þar sem finna má athugasemdir og umsagnir sem bárust í auglýsingarferli og viðbrögð svæðisskipulagsnefndar við þeim. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna í 2.mgr.25.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og 9.gr.laga um umhverfismat áætlana nr.105/2006.
Bæjarráð Garðabæjar
06
1. (1910). fundur
Bæjarráð vísar samþykkt svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2014 til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að auglýst verði tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka á milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tillagan verður auglýst ásamt umhverfisskýrslu, breytingartillögum og umsögn við innkomnum athugasemdum í samræmi við 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Bæjarráð Garðabæjar
08
1. (1862). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar um að auglýst verði tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka á milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tillagan verður auglýst ásamt umhverfisskýrslu, breytingartillögum og umsögn við innkomnum athugasemdum í samræmi við 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
09
30. (1845). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.