1. (1910). fundur
1. (1910). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
07.01.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1908479
01
Hraungata 32 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita OFG - Verk ehf., kt. 491101-2530, leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 32.
Málsnúmer 1910224
02
Hraungata 34 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita OFG - Verk ehf., kt. 491101-2530, leyfi til að byggja parhús að Hraungötu 34.
Málsnúmer 1912246
03
Sjávargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Báru Sigurjónsdóttur, kt. 031256-2249, leyfi til setja hurð í stað glugga á núverandi hús að Sjávargötu 3.
Málsnúmer 1905356
04
Súlunes 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Konráðssyni, kt. 240575-5589, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Súlunesi 5.
Málsnúmer 1911412
05
Rjúpnahæð 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjaráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Orra Sigurðssyni, kt. 030379-4709, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Rjúpnahæð 13.
Málsnúmer 1910342
06
Víkurgata 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita V15 ehf., kt. 630519-0200, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Víkurgötu 15.
Málsnúmer 1912277
07
Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi fyrirspurn um heimild fyrir atvinnustarfsemi í íbúðarhúsi.
Bæjarráð telur að starfsemi fótaaðgerðarstofu í íbúðarhverfi sé þess eðlis að hún valdi almennt ekki óþægindum vegna bílaumferðar, hávaða eða öðru ónæði.
Bæjarráð vísar í þessu sambandi til skilmála deiliskipulags og gr. 5.3.2.8. í skipulagsreglugerð þar sem fram kemur heimild fyrir smáatvinnustarfsemi í íbúðarbyggð enda sé þess gætt að hún valdi sem minnstum óþægindum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gera ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912056
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Kópavogs og breytingu á deiliskipulagi Fannborgarreits og Traðarreits.
Lögð fram.
Málsnúmer 1912287
09
Tilkynning frá Kópavogi um kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs varðandi Traðarreit, dags. 19.12.19.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1808350
10
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um lokaafgreiðslu á breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðis 2040 varðandi vaxtarmörk á Álfsnesi, dags. 30.12.19.
Bæjarráð vísar samþykkt svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2014 til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910423
11
Tilkynning frá Sveitarfélaginu Ölfusi varðandi tillögu að aðal- og deiliskipulagsbreytingu fyrir skíðasvæði Bláfjalla í Ölfusi, dags. 20.12.19.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1904109
12
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna niðurfellingar eða lækkun fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega.
Eftirfarandi tillaga samþykkt.
„Einstaklingar með tekjur árið 2018 allt að kr. 5.400.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 5.900.000.
Hjón með tekjur árið 2018 allt að kr. 6.890.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 8.190.000.
Málsnúmer 1912272
13
Áskorun Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla varðandi bættar starfsaðstæður og bætt starfskjör leikskólakennara, dags. 12.12.19.
Bæjarráð vísar áskoruninni til umfjöllunar í leikskólanefnd og skólanefnd grunnskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912280
14
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi áhrif laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, dags. 18.12.19.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í leikskólanefnd og skólanefnd grunnskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001008
15
Bréf Bjarkarhlíðar - miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, um styrk fyrir árið 2020, dags. 20.12.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2020 sem fram fer í mars/apríl.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001026
16
Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins um styrk, dags. 18.12.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2020 sem fram fer í mars/apríl.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912314
17
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi kynningu á drögum að frumvarpi að breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs, dags. 20.12.19.
Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912323
18
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tillögu að friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár í Garðabæ á grundvelli náttúruverndarlaga, dags. 19.12.19.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar varðandi auglýsingu sem birt hefur verið um tillögu að friðlýsingaskilmálum fyrir Búrfellsgjá og Selgjá í Garðabæ ásamt tillögu að mörkum svæðissins. Í auglýsingunni kemur fram að frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 23. mars 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912263
19
Tilkynning um boðun jafnréttisþings 20. febrúar 2020.
Málsnúmer 1703076
20
Tillögur um útfærslu verkefnis er varðar Heilsueflandi Garðabæ.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir málinu og upplýsti að íþrótta- og tómstundaráð hafi tekið jákvætt í málið á fundi 2. janúar sl.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Capacent á grundvelli fyrirliggjandi tillögu um kortlagningu á stöðu áhrifaþátta varðandi verkefnið Heilsueflandi Garðabær sem er hluti af Heimsmarkmiðunum.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til kynningar í viðeigendum nefndum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912278
21
Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi leyfi til að halda þorrablót í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi, dags. 18.12.19.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Kvenfélags og Lionsklúbbs Álftaness í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi laugardaginn 1. febrúar nk. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912151
22
Bréf heilbrigðiseftirlits (afrit) varðandi viðbragðsáætlun um loftgæði, dags. 11.12.19.
Lagt fram bréf heilbrigðiseftirlitsins til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er varðar gerð viðbragðsáætlunar til að draga úr loftmengun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912290
23
Tilkynning frá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi o.fl. varðandi samvinnu um framleiðslu fjölmiðlaefnis um loftslagsmál, dags. 18.12.19.
Bæjarráð vísar málinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra í tengslum við vinnu við gerð sóknaráætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1804190
24
Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar varðandi kæru á álagningu fasteignaskatts vegna fasteignar að Iðnbúð 5, dags. 14.11.19.
Málsnúmer 1912322
25
Bréf yfirfasteignamatsnefndar varðandi kæru á álagningu fasteignaskatts vegna fasteignar að Iðnbúð 5, dags. 19.12.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912183
26
Bréf Íslensku lögfræðistofunnar f.h. umbj. varðandi kröfu um skaðabætur vegna tafa á byggingarframkvæmdum á lóðinni við Brúnás 12, dags. 06.12.19.
Málsnúmer 1912232
27
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru H.J. á útgáfu byggingarleyfis fyrir byggingu einbýlishúss á lóðinni við Brúnás 12, dags. 17.12.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912304
28
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru Dalsness varðandi skipulag lóðarinnar við Hrauntungu, dags. 23.12.19.
Málsnúmer 1912335
29
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru E.S.Þ. á synjun umsóknar um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14, dags. 30.12.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811206
30
Stefna ÁÞ á hendur Garðabæ um greiðslu skaðabóta vegna galla á fasteign að Rjúpnahæð 14, dags. 17.12.19.
Lögð fram.
Andri Árnason, lögmaður mun gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1808087
31
Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.