Beint í efni

Þrastanes 14 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra

Málsnúmer 1912277

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (860). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi fyrir starfsemi fótaaðgerðarstofu í íbúðarhúsnæði að Þrastanesi 14, sbr. heimild í deiliskipulagi grein 4.16.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

1. (1910). fundur

Bæjarráð telur að starfsemi fótaaðgerðarstofu í íbúðarhverfi sé þess eðlis að hún valdi almennt ekki óþægindum vegna bílaumferðar, hávaða eða öðru ónæði.

Bæjarráð vísar í þessu sambandi til skilmála deiliskipulags og gr. 5.3.2.8. í skipulagsreglugerð þar sem fram kemur heimild fyrir smáatvinnustarfsemi í íbúðarbyggð enda sé þess gætt að hún valdi sem minnstum óþægindum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gera ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Fylgiskjöl

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

13. fundur

Lögð fram umsókn um starfsleyfi fyrir fótaaðgerðarstofu að Þrastanesi 14. Fram kemur að um 4-6 viðskiptavini á dag er að ræða.
Samkvæmt grein 4.16. í greinargerð deiliskipulags Arnarness kemur fram að rekstur sem leiðir af sér umferðaraukningu um húsagötur eða ónæði er með öllu óheimil nema með leyfi bæjarstjórnar.
Skipulagsstjóri telur að umferð af umræddri starfsemi sé óveruleg og að nóg bifreiðarstæði eru á lóðinni eins og hún er útfærð. Auk þess er aðkoma frá Lundanesi sem telst ekki húsagata skv.deiliskipulagi.
Vísað til bæjarráðs/bæjarstjórnar.