Beint í efni

Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar varðandi kæru á álagningu fasteignaskatts vegna fasteignar að Iðnbúð 5, dags. 14.11.19.

Málsnúmer 1804190

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

1. (1910). fundur

Lagður fram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

40. (1901). fundur

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1837). fundur

Bæjarráð getur ekki fallist á að geymsluhúsnæði sem eingöngu er nýtt fyrir bifreiðar en ekki til búsetu geti talist til íbúðarhúsnæðis í skilningi a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

15. (1830). fundur

Í bréfinu er farið fram á að eignarhluti einkahlutafélags í eigu bréfritara og maka hans í húseigninni að Iðnbúð 5, Garðabæ verði við álagningu fasteignaskatts skattlagður sem íbúðarhús þar sem viðkomandi húsrými er nýtt sem bílgeymsla.

Bæjarráð getur ekki fallist á að eignarhluti í atvinnuhúsnæði sem nýttur er til geymslu geti fallið undir ákvæði a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og talist íbúðarhúsnæði.

Bæjarráð vísar til úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar frá 15. ágúst 2016 í máli nr. 14/2016 en þar var ekki fallist á að geymslurými sem nýtt er með sambærilegum hætti geti fallið undir tilvitnað lagaákvæði.

Fylgiskjöl