15. (1830). fundur
15. (1830). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
24.04.2018
Kl. 08:00 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Urriðaholtsstræti 38 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Urriðaholtsstræti 38.
02
Tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir sem bárust og leggur til að úthlutað verði kr. 8.000.000 úr sjóðnum til 16 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.
03
Bréf Péturs Stefánssonar varðandi álagningu fasteignaskatts, 16.04.18.
Í bréfinu er farið fram á að eignarhluti einkahlutafélags í eigu bréfritara og maka hans í húseigninni að Iðnbúð 5, Garðabæ verði við álagningu fasteignaskatts skattlagður sem íbúðarhús þar sem viðkomandi húsrými er nýtt sem bílgeymsla.
Bæjarráð getur ekki fallist á að eignarhluti í atvinnuhúsnæði sem nýttur er til geymslu geti fallið undir ákvæði a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og talist íbúðarhúsnæði.
Bæjarráð vísar til úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar frá 15. ágúst 2016 í máli nr. 14/2016 en þar var ekki fallist á að geymslurými sem nýtt er með sambærilegum hætti geti fallið undir tilvitnað lagaákvæði.
Fylgiskjöl
04
Bréf Árna Bjarnsteinssonar varðandi sumarlaun vegna undirbúnings fyrir ólympíukeppni í líffræði, dags. 10.04.18.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um að greiða honum sumarlaun 2018 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í olympíukeppni í líffræði.
Fylgiskjöl
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjað rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í Stjörnuheimili.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Bréf Námsleyfasjóðs um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2018, dags. 10.04.18.
Lögð fram bréf Námsleyfasjóðs þar sem greint er frá því að sjóðurinn hafi úthlutað skóladeild Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 1.728.000 til verkefna á sviði upplýsingatækni o.fl. og styrk að fjárhæð kr. 1.920.000 til verkefnis er tengist móttöku barna af erlendu bergi.
Fylgiskjöl
07
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024, 480. mál., dags. 20.04.18.
08
Bréf Klúbbsins Geysis um styrk, dags. 13.04.18.
Bæjarráð samþykkir að veita Klúbbnum Geysi styrk að fjárhæð kr. 100.000 fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
09
Bréf Bjarkarhlíðar - miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis um styrk, dags. 16.11.17.
Bæjarráð samþykkir að veita Bjarkarhlið - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis styrk að fjárhæð kr. 200.000 fyrir árið 2018.