22. (1837). fundur
22. (1837). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.06.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Lúðvík Hjalti Jónsson - embættismaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Málaflokkayfirlit 01.01.18 - 30.04.18.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í málaflokkayfirliti fyrir tímabilið 01.01.18. - 30.04.18.
Fylgiskjöl
02
Kauptún, dælustöð - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Veitum ohf., kt. 501213-1870 leyfi til að byggja dælustöð í Kauptúni.
03
Brekkugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fagsmíði ehf., kt. 670395-2869 leyfi til að byggja parhús að Brekkugötu 8.
04
Brekkugata 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fagsmíði ehf., kt. 670395-2869 leyfi til að byggja parhús að Brekkugötu 10.
05
Brekkugata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fagsmíði ehf., kt. 670395-2869 leyfi til að byggja parhús að Brekkugötu 12.
06
Brekkugata 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fagsmíði ehf., kt. 670395-2869 leyfi til að byggja parhús að Brekkugötu 14.
07
Steinás 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kaffibrennslu Hafnarfjarðar ehf., kt. 681172-0179 leyfi fyrir viðbyggingu og innri breytingum við núverandi hús að Steinási 3.
08
Urriðaholtsstræti 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Urriðaholtsstræti 28 ehf., kt. 620217-0180 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 12 íbúðum að Urriðaholtsstræti 28.
09
Skeiðakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóhanni Hauki Hafstein, kt. 020279-4949 leyfi til að byggja einbýlishús að Skeiðakri 7.
10
Hegranes 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigrúnu Gísladóttur, kt. 10668-3199, leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Hegranesi 28.
11
Engimýri 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ýr Frisbæk, kt. 280578-2749, leyfi fyrir endurnýjun og stækkun núverandi einbýlishúss að Engimýri 7.
12
Bréf Lögmanna í Laugardal varðandi álagningu fasteignaskatts, dags. 01.06.18.
Bæjarráð getur ekki fallist á að geymsluhúsnæði sem eingöngu er nýtt fyrir bifreiðar en ekki til búsetu geti talist til íbúðarhúsnæðis í skilningi a-liðar 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.
Fylgiskjöl
13
Könnun á kjörum sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga 2018.
Lögð fram.
Fylgiskjöl
14
Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2017.
15
Bréf Barnaverndarstofu varðandi lóð fyrir meðferðarheimili, dags. 04.06.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
16
Bréf Töframáttar tónlistar um styrk, dags. 28.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
17
Bréf Íslenskrar orkumiðlunar varðandi raforkukaup Garðabæjar, dags. 04.06.18.
18
Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá fyrir skólaárið 2018-2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2018-2019.
Fylgiskjöl
19
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi úttekt á starfsemi Flataskóla, dags. 06.06.18.
20
Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi hraðahindrun í Hraunhólum, dags. 06.05.16. móttekið. 11.06.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og svara erindinu.
Fylgiskjöl
21
Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi skráningu fasteignar, dags. 05.06.17. móttekið 11.06.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og svara erindinu.
Fylgiskjöl
22
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi byggingu á Hliðsnesi, dags. 11.06.18.
24
Bréf Landsnets hf. um afturköllun á framkvæmdaleyfi, dags. 19.06.18.
25
Niðurstaða dómnefndar varðandi aðstöðu fyrir heilsurækt í Ásgarði, dags. 21.06.18.
Lögð fram niðurstaða dómnefndar sem bæjarráð skipaði til að annast viðræður við þátttakendur, sem valdir voru í forvali um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingar aðstöðu til heilsuræktar í Ásgarði.
Dómnefndin hefur farið yfir tillögur frá eftirfarandi aðilum:
Sporthöllin ehf. (Sporthúsið)
Laugar ehf. (World Class)
RFC ehf. (Reebook Fitness Center)
Bæjarráð samþykkir tillögu dómnefndar um að tveimur aðilum, Sporthöllinni ehf. og Laugum ehf. verðið gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku með því að skila inn tilboði á grundvelli þeirra hugmynda sem settar hafa verið fram á fyrra stigi.
Fylgiskjöl
26
Tillaga Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.