30. (1845). fundur
30. (1845). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
28.08.2018
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - lántaka
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 750.000.000, verðtryggt með 2,60% breytilegum vöxtum, sbr. viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2018. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
02
Vinastræti 14 - 16 (16-18) - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 15 íbúðum að Vinastræti 14-16.
03
Sunnuflöt 42 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kjartani G. Björgvinssyni, kt. 060366-3819 leyfi fyrir endurbótum og viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Sunnuflöt 42.
04
Bréf Þjóðskjalasafns Íslands varðandi skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila, dags. 16.08.18.
Lagt fram bréf Þjóðskjalasafns Íslands þar sem áréttað er, í tengslum við gildistöku nýrra laga um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga, að ekki er heimilt að eyða nokkru skjali í skjalasafni afhendingarskyldara aðila nema með heimild þjóðskjalavarðar samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn.
Fylgiskjöl
05
Bréf Brynju - Hússjóðs ÖBÍ varðandi umsókn um stofnframlag, dags. 16.08.18.
06
Bréf Reykjavíkur varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi, iðnaðarsvæði fyrir efnisvinnslu við Álfsnesvík, dags. 23.08.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
07
Bréf SSH varðandi tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðissins varðandi breytt vaxtamörk við Álfsnes, dags. 23.08.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
08
Bréf Hjalta Steinþórssonar, lögmanns f.h. umbj varðandi tilboð um sölu húsnæðis að Njarðargrund 2, dags. 23.08.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.