Sjónarvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
10. fundur
Með vísan í bókun afgreiðslufundar skipulagstjóra þann 23.janúar er eftirfarandi bætt við þá bókun: "Við skilgreiningu á fjölda bílastæða á lóð skal miðað við þær fermetrastærðir sem íbúðirnar höfðu fyrir breytingu þessa."
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
1. fundur
Lögð fram breyting á samþykktu byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að byggingin verði einangruð að utan en ekki að innan. Að hluta til fer bygging 4 cm út fyrir byggingarreit.
Ástæða breytingarinnar er sú að nýr framkvæmdaraðili er kominn að verkinu sem hefur haft þær áherslur að einangra byggingar sínar að utan.
Í ljósi aðdraganda málsins gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
05
5. (1820). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles 2 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Sjónarvegi 1.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
1. (823). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 1 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
07
2. (1817). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 1 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að tvær íbúðir verði tengdar með svalgangi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.