Austurhraun 5 - Þykkvabær stækkun á vörulager
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (823). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.
Bæjarráð Garðabæjar
02
2. (1817). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir niðurstöðu deiliskipulagshöfundar í kjölfar skoðunar.
Þar kemur fram að ekki getur talist æskilegt að byggja svo nærrri lóðarmörkum á baklóðum í Molduhrauni.
Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
15. fundur
Tillögu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Afla skal umsagnar deiliskipulaghöfundar.