Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (1817). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
1. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Bæjargils síðari áfanga (Hæða) að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreit í norðurhorni lóðar fyrir einnar hæðar smáhýsi undir háum stoðvegg. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sbr.3.mgr.ofangreindara lagagreinar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hæðahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Rjúpnahæð 13, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hæðahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Rjúpnahæð 13, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulaginu Bæjargil II.áfangi (Hæðahverfi) sem gerir ráð fyrir byggingarreit í norðurhorni lóðar, að lóð nr.11. fyrir 1 hæðar smáhýsi undir háum stoðvegg sem er á lóðarmörkum en talsverður hæðarmunur er á þessum stað.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum við Rjúpnahæð 8, 9, 10, 11, 12, 14 og 15. Ef samþykki þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að skipulagstjóri stytti tíma grenndarkynningar.