Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 47.

Málsnúmer 1711071

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

2. (1817). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 47. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 23,2 m2 til vesturs. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sbr.3.mgr.ofangreindara lagagreinar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Lindarflöt 47, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

45 (1811). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Lindarflöt 47, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

14. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu á lóðinni Lindarflöt 47 sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til vesturs um 2,5 m og fá lóðarmörkum að norðan til suðurs um 9,3 m. Flatarmál stækkunar 23,2 m2.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Lindarflöt 49. 45,5 og 7.