42. (1903). fundur
42. (1903). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.11.2019
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023) - álagning gjalda.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að álagningu gjalda samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarráð vísar tillögu að álagningu gjalda til afgreiðslu bæjarstjórnar.
02
Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vilborgu Grétarsdóttur, kt. 100178-5169, leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Brúnás 12.
03
Hraungata 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130, leyfi til breytinga á klæðningu fjölbýlishússins að Hraungötu 5.
04
Hraungata 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130, leyfi til breytinga á klæðningu fjölbýlishússins að Hraungötu 9.
05
Hraungata 11 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130, leyfi til breytinga á klæðningu fjölbýlishússins að Hraungötu 11.
06
Dýjagata 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafi Torfa Yngvasyni, kt. 150484-2359, leyfi til að minnka skriðkjallara í einbýlishúsi í byggingu að Dýjagötu 7.
07
Kinnargata 82 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Meter Byggingafélagi ehf., kt. 511115-1910, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með níu íbúðum að Kinnargötu 82.
08
Umsókn Magnúsar Kristinssonar um hesthúsalóð á Kjóavöllum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Magnúsi Kristinssyni, kt. 150953-3409 lóð við Andvaravelli. Gatnagerðargjald skal ákvarða miðað við 240 m2 hús eða kr. 5.268.594. (BVT nóv. 2019.) Byggingarréttargjald skal vera kr. 5.268.594.
09
Úthlutun lóðar við Garðahraun 1 - skilmálar.
Bæjarráð samþykkir skilmála vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar lóðar fyrir atvinnuhúsnæði að Garðahrauni 1.
10
Úthlutun og sala byggingarréttar lóða við Eskiás.
Bæjarráð samþykkir skilmála vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar lóða fyrir fjölbýlishús að Eskiási 8 og 10.
11
Drög að samkomulagi við Veitur ohf. um uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
12
Bréf Vegagerðarinnar um leyfi til framkvæmda við endurbætur Hafnarfjarðarvegar o.fl., dags. 31.10.19.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita Vegagerðinni leyfi til framkvæmda vegna breikkunar og endurbóta á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg og Lyngás ásamt gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi umferð við Hraunsholtslæk. Einnig er um að ræða framkvæmdir við breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Hafnarfjarðarvegar og Litlatúns og gerð hringtorgs við Litlatún.
Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir og deiliskipulagsbreytingar sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 855/2019.
Fylgiskjöl
13
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi jafnréttisáætlanir sveitarfélaga. dags. 30.10.19.
14
Bréf Garðakórsins um styrk, dags. 28.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
15
Bréf Capacent varðandi sameiningar sveitarfélaga, ódags.
16
Bréf Sveitarfélagsins Ölfuss varðandi skipulagslýsingu fyrir skíðasvæðið í Bláfjöllum, dags. 29.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
17
Fjárhagsáætlun Strætó 2020.
Bæjarráð vísar kynningu Strætó bs. til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
18
Bréf mennta- og menningarmálaráðherra og forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðandi dag íslenskrar tungu, dags. í okt. 2019.
19
Bréf félagsmálaráðuneytis varðandi tilnefningu fulltrúa í samráðshóp vegna móttöku flóttamanna, dags. 17.10.19.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Almar Guðmundsson, formann fjölskylduráðs og Hildigunni Árnadóttur, yfirfélagsráðgjafa, fulltrúa Garðabæjar í samráðshóp vegna móttöku flóttamanna.
Fylgiskjöl
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um grunnskóla (ritfangakostnaður), 230. mál., dags. 25.10.19.
21
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á Garðatorgi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.