Skipulag - Keldugata 2-20, dsk breyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytinga á lóðum við Keldugötu. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1874). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytinga á lóðum við Keldugötu. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa dags. 20. mars 2019 að lokinni auglýsingu þar sem athugasemdir bárust.
Tillagan gerir ráð fyrir að ein fjölbýlishúsalóð verði lögð af. Íbúðum í götunni fjölgar alls um 3. Með lækkun byggingareits Keldugötu 14-18 mun útsýni allra íbúða við Holtsveg 23-25 aukast til muna niður að Urriðavatni, til vesturs, en með hækkun Keldugötu 20 um 1,5 metra mun útsýni íbúða á 3-5 hæð skerðast óverulega, aðallega til norðvesturs.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Urriðaholt vestur, Keldugötu 2-20 óbreytta, í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan í framlagða umsögn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóða við Keldugötu að ofanverðu. Auglýsing hefur farið fram. Athugasemdir hafa borist frá íbúum að Holtsvegi 23-25. Tillögu og athugasemdum vísað til tækni-og umhverfissviðs og deiliskipulagshöfundar til skoðunar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsagerðum við Keldugötu.
Bæjarráð Garðabæjar
06
2. (1863). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsagerðum við Keldugötu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir breytingu á húsagerðum ofl við ofanverða götuna. Tillagan gerir ráð fyrir að ein fjölbýlishúsalóð verði lögð af. Íbúðum í götunni fjölgar alls um 3.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með húseigendum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Keldugötu 8-20 á tveimur uppdráttum og einni ásýndarmynd. Tillagan felst m.a. í að breyta þremur lóðum í tvær, íbúðum er fjölgað úr 9 í 11 og bílastæðum fjölgar um eitt. Krafa er um aðgengi frá Keldugötu og frá Holtsvegi á lóð Keldugötu 8-12. Að öðru leiti er vísað í meðfylgjandi uppdrætti.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsstjóra falið að kynna tillöguna á fundi með íbúum og eigendum lóða við Keldugötu.