Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.

Málsnúmer 1507053

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

47. (1813). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

Lögð fram umsögn Fiskistofu um deiliskipulagstillöguna. Umsögnin kallar ekki á breytingu á deiliskipulagstillögunni.

Bæjarráð Garðabæjar

03

45 (1811). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar sem gerir nokkrar athugasemdir við samþykkt deiliskipulag.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir athugasemdum þessum og tillögu að viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra um það að bílastæði við Hjallaflatir og á Hjallasniði verði felld út úr deiliskipulaginu þar sem þau eru innan grannsvæðis vatnsverndar. Ef til framkvæmda kemur á umræddum bílastæðum síðar þá þarf að vinna breytingu á deiliskipulagi í samráði við yfirstjórn vatnsverndar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

44. (1810). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir við tillöguna sem þykja ekki gefa tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

07

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir við tillöguna sem þykja ekki gefa tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan hefur það markmið að fá heildstæðara og markvissara skipulag fyrir svæðið sem verndar- ræktunar- og útivistarsvæði. Gildi svæðisins sem slíks verður styrkt með því að skilgreina skógræktarsvæði fyrir útivistarskóg, afmarka útivistarsvæði þar sem lítil útilífsmiðstöð verður staðsett, afmarka áningarstaði m.a. með nestis- og grillaðstöðu, sýna lagfæringu á Heiðmerkurvegi og á línuveginum og skilgreina bílastæði. Skilgreindir eru göngu-, hjóla- og reiðstígar sem tengja saman mismunandi svæði til að bæta aðgengi almennings og styrkja gildi svæðisins til fjölbreyttrar útivistar. Einnig á deiliskipulagið að taka tillit til þeirrar verndunar sem í gildi er á skipulagssvæðinu og tryggja verndun náttúru- og menningarminja.
Tillagan var í auglýsingu frá 10.mars til 21.apríl samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags vegna sama svæðis.

Athugasemdir hafa borist frá eftirfarandi aðilum:
Hestannafélagið Sprettur dags.18.apríl 2017
Jón Lárusson og Björn Erlendsson f.h.eigenda Selskarðs dags.21.apríl 2017

Umsagnir liggja fyrir frá eftirfarandi aðilum:
Landsnet dags 25.apríl 2017
Heilbrigðiseftirlit dags. 25.apríl 2017
Vegagerðin dags 2.maí 2017

Að mati nefndarinnar kalla athugasemdir og umsagnir ekki á breytingu á tillögnni. Hugmyndum Hestamannafélagsins Spretts um nýjar reiðleiðir er vísað til tækni-og umhverfissviðs. Ef niðurstaða þeirrar skoðunar er jákvæð skal leggja fram tillögur að breytingu deiliskipulags og aðalskipulags sem hljóta þá nauðsynlega umfjöllun og ferli.

Skipulagsnefnd samþykkir auglýsta tillögu óbreytta sem deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

7. (790). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

10

12. (1729). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

7. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar sem hefur nú verið forkynnt. Forkynning stóð frá 26.nóvember 2015 til 15.janúar 2016. Kynningarfundur var haldinn 1.desember. Deiliskipulagsráðgjafar, Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir frá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögunni og þeim ábendingum sem borist hafa. Ennfremur lögð fram greinargerð Landlags efh þar sem gerð er grein fyrir ábendingum og tillögur gerðar að viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar með þeim lagfæringum sem lagðar hafa verið í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.