44. (1810). fundur
44. (1810). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.11.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Kynning skýrslu um mögulega samvinnu eða sameiningu Sorpu og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.
Á fund bæjarráðs mættu Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, og Þröstur Sigurðsson og Snædís Helgadóttir, frá Capacent.
Gerðu þau grein fyrir skýrslu um niðurstöðu verðmats sem gerð hefur verið vegna hugsanlegrar sameiningar Sorpu bs. og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.
02
Sandakur 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Einari Birni Tómassyni, kt. 010570-3369, leyfi til að byggja einbýlishús að Sandakri 1.
03
Sjónarvegur 16-24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Sjónarvegi 16-24.
04
Dyngjugata 18 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja parhús að Dyngjugötu 18.
05
Dyngjugata 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja parhús að Dyngjugötu 20.
06
Ránargrund 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnarnesvogi ehf., kt. 651116-1120 leyfi til að byggja veitingahús að Ránargrund 4.
07
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands um ágóðahlutagreiðslu 2017, dags. 30.10.17.
Lagt fram bréf Einarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar árið 2017 er að fjárhæð kr. 1.810.000.
Fylgiskjöl
08
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi athugasemdir við samþykkt á deiliskipulagi fyrir Heiðmörk, dags. 16.10.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
09
Bréf foreldraráðs og foreldrafélags leikskólans Kirkjubóls varðandi mönnun á leikskólanum, dags. 03.11.17.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir fundi sem haldinn hefur verið með bréfriturum og leikskólastjóra þar sem farið var yfir og upplýst um þær breytingar sem gerðar hafa verið á dagskipulagi til að bæta mönnun á leikskólanum o.fl.
10
Bréf ÁTVR um leyfi fyrir opnun vínbúðar í Kauptúni, dags. 07.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
11
Heilsuræktarstöð í Ásgarði - skipun dómnefndar.
Bæjaráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila sem fulltrúa í dómnefnd til að annast viðræður við þátttakendur, meta hugmyndir og gera tillögu til bæjarráðs um val á hugsanlegum samningsaðila vegna byggingar heilsuræktarstöðvar við Ásgarð.
Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi.
Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúi.
12
Bréf Umhverfisstofnunar um upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, dags. 06.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til upplýsingar í skipulagsnefnd og umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
13
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti um endurskoðun á reglum um frumkvæðismál vegna stjórnsýslu sveitarfélaga, dags. 09.11.17.
14
Bréf ÚUA um kæru vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahrauns (vegtenging), dags. 09.11.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
15
Bréf ÚUA um kæru vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahrauns (Hrauntunga), dags. 09.11.17.
16
Úrskurður ÚUA varðandi byggingarleyfisskyldu framkvæmda í bæjargarði, dags. 07.11.17.
17
Bréf heilbrigðseftirlits varðandi tillögu um breytingu á gjaldskrá, dags. 28.09.17.
Bæjarráð vísar tillögu að breytingu á gjaldskrá heilbrigðiseftirlits til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
18
Bréf Norræna félagsins í Garðabæ um styrk til að halda sambandsþing í Garðabæ, dags. 09.11.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
19
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)
Bæjarráð vísar tillögu um álagningu útsvars á árinu 2018 til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Tillögu um álagningu fasteignagjalda og tillögum um breytingar á gjaldskrám er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu um fjárhagsáætlun sem fram fer 7. desember nk.