Beint í efni

Tillaga um hvatningu til ÁTVR um opnun sérverslunar með létt vín í miðbæ Garðabæjar.

Málsnúmer 1711044

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (1814). fundur

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri sendi bréf í nafni bæjarstjórnar þar sem hvatt er til þess að ÁTVR opni sérverslun með létt vín í miðbæ Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins fái leyfi í eitt ár, sbr. 2. mgr. 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998, til að reka vínbúð í Kauptúni.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu SE til bæjarráðs.

Bæjarráð Garðabæjar

03

45 (1811). fundur

Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem ekki lagst gegn því að ÁTVR opni vínbúð í Kauptúni

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins fái leyfi í eitt ár, sbr. 2. mgr. 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998, til að reka vínbúð í Kauptúni.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn ÁTVR um starfsemi sérverslunar í miðbæ Garðaðbæjar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Tekið fyrir erindi Víðbúðarinnar/ÁTVR dags 7.nóvember 2017 þar sem óskað er eftir heimild Garðabæjar til þess að opna áfengisverslun í Kauptúni.
Skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum af auknu umferðarálagi í tengslum við opnun ÁTVR í Kauptúni. Opnunin kallar á að framkvæmdum við breytingar á gatnakerfinu eins og deiliskipulagsbreyting á síðasta ári gerir ráð fyrir, sé hraðað.
Nefndin lýsir yfir furðu sinni á því að ÁTVR hafi ekki komið til móts við óskir Garðabæjar um staðsetningu vínbúðar í miðbæ Garðabæjar. Í ljósi þess að ÁTVR, sem hefur einkarétt á smásölu áfengis, hefur lýst áhuga á að opna sérvöruverslanir með áfengi, þá er ÁTVR bent sérstaklega á áhuga Garðabæjar á því að slík verslun opni á miðbæjarsvæði Garðabæjar.
Árið 2003 var í íbúakosningu samþykkt að heimila starfsemi ÁTVR í sveitafélaginu. Í því ljósi leggst skipulagsnefnd ekki gegn því að veitt verði heimild til opnunar vínbúðar í Kauptúni, en áréttar jafnframt áhuga á að opna vínbúð í miðbæ Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

44. (1810). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl