Beint í efni

48. (1814). fundur

12.12.2017
Bæjarráð Garðabæjar

48. (1814). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

12.12.2017

Kl. 08:00 - 08:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1710169

01

Fjölnota íþróttahús - Alútboð

Á fund bæjarráðs mætti Stefán Veturliðason, verkfræðingur hjá VSB og gerði grein fyrir forvalsgögnum vegna lokaðs alútboðs á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa forval þar sem óskað er eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða.

Málsnúmer 1707169

02

Lynghólar 32 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf. leyfi til að byggja fjölbýlishús með tveimur íbúðum við Lynghóla 32.

Málsnúmer 1707170

03

Lynghólar 34 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf. leyfi til að byggja fjölbýlishús með tveimur íbúðum við Lynghóla 34.

Málsnúmer 1707171

04

Lynghólar 36 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf. leyfi til að byggja fjölbýlishús með tveimur íbúðum við Lynghóla 36.

Málsnúmer 1707172

05

Lynghólar 38 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf. leyfi til að byggja fjölbýlishús með tveimur íbúðum við Lynghóla 38.

Málsnúmer 1711037

06

Lindarflöt 35 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðari Hannesi Friðjónssyni leyfi til að breyta bílskúr í íbúðarými og byggja nýjan bílskúr innan byggingarreits á lóðinni að Lindarflöt 35.

Málsnúmer 1712051

07

Bréf Persónuverndar varðandi ábendingu um eftirlitsmyndavél við Álftanesveg, dags. 04.12.17.

Bæjarstjóri vísaði til samþykktar bæjarráðs frá 21. mars sl. þar sem fram kemur að uppsetning umræddrar öryggismyndavélar er samstarfsverkefni bæjarins, Lögreglu og Neyðarlínu. Í vinnslu er að ganga frá samstarfssamningi, merkingum á vettvangi og tilkynningu til Persónuverndar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1711156

08

Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð 2017.

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir helstu breytingum nýrra reglan um fjárhagsaðstoð.

Bæjarráð vísar tillögu að endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1711044

09

Tillaga um hvatningu til ÁTVR um opnun sérverslunar með létt vín í miðbæ Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri sendi bréf í nafni bæjarstjórnar þar sem hvatt er til þess að ÁTVR opni sérverslun með létt vín í miðbæ Garðabæjar.

Málsnúmer 1712066

10

Bréf Þorrablótsnefndar Kvenfélags og Lionsklúbbs Álftaness varðandi Þorrablót 2018, dags. 06.12.17.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1712078

11

Bréf TV og ÞH varðandi skipulags- og umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu, dags. 03.12.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og jafnframt er bæjarstjóra falið að taka málið upp innan vettvangs samtaka sveitarfélaga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611192

12

Húsnæðismál Alþjóðaskólans.

Bæjarráð vísar málinu til nánar skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Málsnúmer 1712056

13

Bréf íbúa í Prýðahverfi með áskorun um lokun gamla Álftanesvegar við Hraun, dags. 06.12.17.

Málsnúmer 1712031

14

Bréf Lögfræðiskrifstofu Reykjavíkur f.h. umbj. varðandi kröfu um hlutdeild í kostnaði vegna þakviðgerða á Steinási 1, dags. 30.11.17.

Bæjarráð samþykkir að fela Andra Árnasyni, hrl. að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Fylgiskjöl