Borgarlína. Breyting á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar samgöngu- þróunarása fyrir borgarlínu. Við ákvörðun á legu skal tekið tillit til ákvæða aðalskipulags um að samgönguás borgarlínu liggi ofan á stokk sem gert er ráð fyrir að lagður verði um hluta Hafnarfjarðarvegar um Garðabæ.
María Grétarsdóttir, situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
02
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar samgöngu- þróunarása fyrir borgarlínu. Við ákvörðun á legu skal tekið tillit til ákvæða aðalskipulags um að samgönguás borgarlínu liggi ofan á stokk sem gert er ráð fyrir að lagður verði um hluta Hafnarfjarðarvegar um Garðabæ.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagt fram erindi frá svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 6. mars 2018 varðandi samþykkt Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins á breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040 varðandi samgöngu og þróunarása fyrir Borgarlínu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040 þar sem skilgreindir eru samgöngu- og þróunarásar sbr. 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (1825). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
47. (1813). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
14. (816). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Borgarlínu og heimila auglýsingu á tillögunni samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
08
35. (1801). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Borgarlínu og heimila auglýsingu á tillögunni samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" sem svæðisskipulagsnefnd hefur lagt til að verði auglýst.
Eftirfarandi kemur fram í erindi frá svæðisskipulagsstjóra:
"Á grunni samkomulags sveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu dags. 2. desember 2016 hefur verið unnin tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 vegna Borgarlínu.
Vinnslutillögur svæðis- og aðalskipulags voru kynntar frá 29. maí til og með 21. júní 2017. Alls bárust athugasemdir og/eða ábendingar frá 33 aðilum og þar af 12 lögbundnum umsagnaraðilum. Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynningu. Tillagan byggir á greiningarvinnu COWI eins og hún birtist í lokaskýrslu dags. september 2017.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins fjallaði um lokaskýrslu COWI og tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu sínum þann 8. september 2017. Eftirfarandi var bókað:
Með tilvísan í 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga samþykkir svæðisskipulagsnefnd að leggja til við aðildarsveitarfélögin að samþykkja að auglýsa tillöguna eftir athugun Skipulagsstofnunar.
Eins og fram kemur í samkomulagi sveitarfélaganna þá er ætlunin að ljúka skipulagsvinnu á árinu 2017."
Á fundinum gerði Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri grein fyrir breytingartillögunni og ferli hennar fram til þessa.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að heimila auglýsingu breytingartillögunnar í samræmi við 3.mgr. 23.gr.Skipulagslaga nr.1123/2010 eins og svæðisskipulagsnefnd leggur til.
Bæjarráð Garðabæjar
10
27. (1793). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
5. (807). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
13
7. (1773). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
2. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögum svæðisskipulagsnefndar um breytingar á svæðisskipulagi og breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna uppbyggingar fyrirhugaðs hágæða almenningssamgöngukerfis (Borgarlínu). Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Höfðuðborgarsvæðisins 2040. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1.mgr.23.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.