Beint í efni

4. fundur

23.03.2017
Skipulagsnefnd Garðabæjar

4. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

23.03.2017

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1611150

01

Innleiðing hágæða almenningssamgangna - Borgarlína

Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri,Eyjólfur Árni Rafnsson verkefnisstjóri Borgarlínu og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá Viaplan kynntu kostagreiningar borgarlínu sem danska verkfræðistofan COWI vinnur nú að. Horft er til mismunandi leiða innan samgönguása.

Málsnúmer 1702066

02

Borgarlína. Breyting á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040.

Sjá fundarlið 1.

Málsnúmer 1702223

03

Aðalskipulag Garðabæjar. Breyting vegna Borgarlínu.

Sjá fundarlið 1.

Málsnúmer 1302243

04

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags 20.mars þar sem bent er á margvísleg atriði sem laga þarf og taka afstöðu til í tillögu að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Lögð fram drög að greiningu á þeim atriðium sem þarf að bregðast við sem skipulagsráðgjafi hefur unnið. Vísað til skoðunar hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1703099

05

Skipulag lóðar við Grænagarð

Erindi erfingja Sigurðar Þorkelssonar lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.