Aðalskipulag Garðabæjar. Breyting vegna Borgarlínu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar, samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga, vegna legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg. Um verður að ræða sameiginlega kynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
18. (1784). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar, samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga, vegna legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg. Um verður að ræða sameiginlega kynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 20176-2030 sem gerir ráð fyrir legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg. Svæðisskipulagsstjóri Hrafnkell Proppé gerði grein fyrir tillögunni ásamt Stefáni Thors og Andreu Kristinsdóttur hjá VSÓ sem eru ráðgjafar verkefnisins.
Tillagan sett fram á uppdráttum og á þemakorti eru sýnd líkleg áhrifasvæði borgarlínunnar.
Lagðar fram umsagnir um verkefnislýsingar svæðisskipulagsbreytingar og aðalskipulagsbreytinga vegna innleiðingar Borgarlínu. Umsagnir eru frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Minjastofnun, Samgöngustofu, Skiplagsráði Kópavogs, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni og Baldri Snæ Jónssyni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 1.mgr.36.gr. og 2.mgr.30.gr.Skipulagslaga. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu munu forkynna tillögur að samkskonar aðalskipulagsbreytingum sameiginlega.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
5. (807). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (1773). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögum svæðisskipulagsnefndar um breytingar á svæðisskipulagi og breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna uppbyggingar fyrirhugaðs hágæða almenningssamgöngukerfis (Borgarlínu). Skipulagsstjóra falið að vera í samráði við svæðisskipulagstjóra og Skipulagsstofnum um útfærslu breytingarferlisins þar sem að nú er tillaga að nýju aðalskipulagi í auglýsingar-og staðfestingarferli sem skarast á við breytingarferli svæðisskipulags og aðalskipualags vegna Borgarlínuverkefnisins.
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu aðalskipulagsbreytinga dags 2017. Skipulagsnefnd samþykkir verkefnislýsinguna í samræmi við 1.mgr.30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 hvort sem um er að ræða breytingu á gildandi aðalskipulagi eða á þeirri tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt hefur verið til auglýsingar.