Beint í efni

2. fundur

16.02.2017
Skipulagsnefnd Garðabæjar

2. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.02.2017

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1603319

01

Ásgarður, breyting á deiliskipulagi.

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Ásgarðs. Athugasemdir voru gerðar við framsetningu tillögunnar og hafa þær nú verið leiðréttar. Skipualgsstjóri gerði grein fyrir fundum tækni og umhverfissviðs, formanns skipulagsnefndar og bæjarstjóra með íbúum við Stekkjarflöt en í ljós hefur komið að kynning tillögnnar fór fram hjá íbúum. Leitað hefur verið leiða til þess að draga úr áhrifum ljóskastara og færslu göngustígs á aðliggjandi byggð.

Málsnúmer 1612063

02

Hörgatún 2 - DSK breyting - lóð Veritas ehf.

Lögð fram ósk lóðarhafa að Hörgatúni 2 um að fá að hefja vinnu við gerð deiliskipulagsbreytingar á lóðinni sem miði að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á lóðinni í samræmi við ákvæði aðalskipulags um miðbæjarsvæðis á staðnum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að bæjarstjórn veiti lóðarhafa leyfi til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags þegar lögð hefur verið fram verkefnislýsing í samræmi við 40.gr.Skipulagslaga.

Málsnúmer 1701027

03

Garðatorg 1, fyrirspurn um nýtt fjölbýlishús.

Lögð fram til kynningar fyrirspurn lóðarhafa, Regins hf um tillögu að fjölbýlishús að Garðatorg 1.

Málsnúmer 1608251

04

Súlunes 10 - Viðbygging neðan jarðar

Lögð fram tillaga að breytingu á einbýlishúsinu sem gerir ráð fyrir niðurgröfnu rými á baklóð og aðkomu frá framlóð vestan við húsið. Aðkomu að viðbyggingu hefur verið breytt og er hún nú frá bílastæðum. Samþykki nágranna fyrir tillögunni liggur fyrir. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn á svæði án deiliskipulags sbr. 1.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum að Súlunesi 3, 5, 8 og 12 sem og Teistunesi 1.

Málsnúmer 1610150

05

Hvannalundur 17 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn öðru sinni um viðbyggingu og lóðarstækkun einbýlishússhússins að Hvannalundi 17.

Skipulagsnefnd telur að tillagan sé róttæk hvað varðar yfirbragð og skipulag húsa í Lundahverfi sem snúa að Vífilsstaðavegi. Svar nefndarinnar er því neikvætt.

Málsnúmer 1611188

06

Sunnuflöt 22 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Flata sem gerir ráð fyrir lítilli viðbyggingu,anddyri, á framlóð utan byggingreits.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata skv 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar sbr. 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Sunnuflöt 17, 19, 20, 21 og 24.

Málsnúmer 1611187

07

Breiðás 11 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram öðru sinni fyrirspurn um hugmynd að breytingum á húsin Breiðás 11. Skipulagsnefnd telur að breytingar séu í samræmi við deiliskipulag Ása og Grunda en mælir með því að samþykki nágranna fyrir sólskála ofan á bílageymslu liggi fyrir.

Málsnúmer 1609138

08

Samkeppni um Miðsvæði á Álftanesi

Lögð fram til kynningar tillaga að keppnislýsingu sem dómnefnd í samkeppni um deiliskipulag Miðsvæðis á Álftanesi hefur samþykkt. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í bæjarráði.

Málsnúmer 1611066

09

Umhverfisstefna - endurskoðun

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.

Málsnúmer 1702223

10

Aðalskipulag Garðabæjar. Breyting vegna Borgarlínu.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögum svæðisskipulagsnefndar um breytingar á svæðisskipulagi og breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna uppbyggingar fyrirhugaðs hágæða almenningssamgöngukerfis (Borgarlínu). Skipulagsstjóra falið að vera í samráði við svæðisskipulagstjóra og Skipulagsstofnum um útfærslu breytingarferlisins þar sem að nú er tillaga að nýju aðalskipulagi í auglýsingar-og staðfestingarferli sem skarast á við breytingarferli svæðisskipulags og aðalskipualags vegna Borgarlínuverkefnisins.

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu aðalskipulagsbreytinga dags 2017. Skipulagsnefnd samþykkir verkefnislýsinguna í samræmi við 1.mgr.30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 hvort sem um er að ræða breytingu á gildandi aðalskipulagi eða á þeirri tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt hefur verið til auglýsingar.

Málsnúmer 1702066

11

Borgarlína. Breyting á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögum svæðisskipulagsnefndar um breytingar á svæðisskipulagi og breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna uppbyggingar fyrirhugaðs hágæða almenningssamgöngukerfis (Borgarlínu). Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Höfðuðborgarsvæðisins 2040. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1.mgr.23.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1701395

12

Aðalskipulag Reykjavíkur, veitinga- og gististaðir lýsing

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.

Málsnúmer 1701306

13

Aðalskipulag Kópavogs. Nónhæð breyting.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnislýsinguna en óskar eftir því að tillagan verði kynnt á fundi skipulagsnefndar þegar hún verður í forkynningu.

Málsnúmer 1606420

14

Landsskipulagsstefna 2015-2026. Kynningarfundir og ósk um skráningu tengiliða.

Landskipualgsstefna2015-2026 lögð fram til kynningar.