Beint í efni

Hörgatún 2 - DSK breyting - lóð Veritas ehf.

Málsnúmer 1612063

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (807). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við að lóðarhafi hefji vinnu við gerð lýsingar vegna endurskoðunar deiliskipulags fyrir lóðina að Hörgartúni 2, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á grundvelli lýsingarinnar verður síðan tekin afstaða til erindis um að heimila lóðarhafa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

02

7. (1773). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við að lóðarhafi hefji vinnu við gerð lýsingar á vegna endurskoðun deiliskipulags fyrir lóðina að Hörgartúni 2, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á grundvelli lýsingarinnar verður síðan tekin afstaða til erindis um að heimila lóðarhafa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinar, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram ósk lóðarhafa að Hörgatúni 2 um að fá að hefja vinnu við gerð deiliskipulagsbreytingar á lóðinni sem miði að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á lóðinni í samræmi við ákvæði aðalskipulags um miðbæjarsvæðis á staðnum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að bæjarstjórn veiti lóðarhafa leyfi til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags þegar lögð hefur verið fram verkefnislýsing í samræmi við 40.gr.Skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

48. (1765). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl