48. (1765). fundur
48. (1765). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
13.12.2016
Kl. 08:00 - 09:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1611301
01
Sundlaug Ásgarður, endurnýjun - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til nýbyggingar og endurbóta á sundlauginni við Ásgarð.
Málsnúmer 1611240
02
Hnoðraholtsbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að ekki liggur fyrir staðfesting á samþykkt deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar og er afgreiðslu umsóknarinnar frestað.
Málsnúmer 1612037
03
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi áramótabrennu 2016, dags. 05.12.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612090
04
Bréf Hjálparsveitar skáta varðandi framkvæmdir við lyftuanddyri við Jötunheima, dags. 08.12.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til afgreiðslu samkvæmt fjárhagsáætlun á árinu 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612035
05
Bréf GO og GKG um aukinn styrk, dags. 30.11.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609138
06
Miðsvæði Álftaness - uppbygging og endurskoðun deiliskipulags
Bæjarstjóri kynnti drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og Ísb- fasteigna ehf. um samstarf við framkvæmdasamkeppni og gerð nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.
Bæjarráð samþykkir að heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag samkvæmt samningi við Arkitektafélag Íslands verði kr. 5.000.000 án vsk og skulu fyrstu verðlaun ekki vera lægri en kr. 2.500.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612063
07
Bréf Veritas Capital hf. um endurskoðun deiliskipulags lóðarinnar við Hörgatún 2, 05.12.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612087
08
Afrit af bréfi Kópavogsbæjar til Sorpu bs. vegna söfnunar plasts, dags. 30.11.16.
Lagt fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612039
09
Ályktun vagnstjóra Strætó bs. um þrengingar á leiðum strætisvagna, dags. 29.11.16.
Málsnúmer 1612050
10
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi vegna Þorrablóts Kvenfélags Álftaness.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1510125
11
Bréf Sambands ís. sveitarfélaga um skil starfshóps um skoðun á skráningu upplýsinga um nemendur grunnskóla í rafræn upplýsingakerfi, dags. 06.12.16.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að hafist verði handa við að aðlaga framkvæmd við skráningu og meðferð persónuupplýsinga í grunnskólum í samræmi við tillögur starfshópsins.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skólanefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612086
12
Bréf Þroskahjálpar um húsnæðisáætlanir, stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki, dags. 07.12.16.
Málsnúmer 1612080
13
Drög að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Félagsmálastjóri gerði grein fyrir helstu nýmælum samkvæmt ákvæðum laga um sérstakan húsnæðisstuðning.
Bæjarráð vísar drögum að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1605502
15
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega árið 2017.
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2015 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.
Hjón:
Hjón með tekjur árið 2015 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1503196
16
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - Viðaukar 12-19.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 12-19 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 12 Innri leiga- aukning tekna eignasjóðs kr. -9.769.095
Viðauki 13 Framlag til Bessastaðasóknar v/kaupa á húsnæði kr. 6.000.000
Viðauki 14 Jöfnunarsjóður ? stuðningur við tónlistarnám kr. -15.000.000
Viðauki 15 Laun vegna langtímaveikinda kr. 20.000.000
Viðauki 16 Alþingis- og forsetakosningar kr. 1.300.000
Viðauki 17 Framlag til skátafélaga v/endurbóta á húsnæði kr. 12.500.000
Viðauki 17 Fjárveiting vegna aðgengismála kr. -10.000.000
Viðauki 18 Kaup á fasteignum ? viðbótarfjárveiting kr. 182.100.000
Viðauki 18 Fjárveiting til framkvæmda við sundlaug ? lækkun kr. -182.100.000
Viðauki 19 Hækkun útsvars kr. -20.000.000
Niðurstöður rekstrarreiknings breytast með eftirfarandi hætti.
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 102.131.000
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 107.100.096
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 315.826.000
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 320.795.096
Mismunur kr. 4.969.096
Nánari greininga áhrifa er sýnd á fylgiskjali.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1302243
17
Tillaga að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mættu Sigurður Guðmundsson, formaður skipulagsnefndar og Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og gerðu þeir grein fyrir afgreiðslu skipulagsnefndar á tillögu um endurskoðun á aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um endurskoðun á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. sömu laga.