Hnoðraholtsbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
22. (1788). fundur
Bæjaráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veit OR-veitum ohf., kt. 551298-3029 leyfi fyrir byggingu dælustöðvar að Hnoðraholtsbraut 2.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Tekin er fyrir umsókn OR-veitna ohf. um byggingu nýrrar dælustöðvar við Hnoðraholtsbraut 2. Dælustöðin skiptist í þrjú megin rými sem eru dælusalur, spennustöð og rafbúnaðarrými. Húsið er að mestu leyti niðurgrafið í mön fyrir utan aðkomuhlið sem snýr til norður.
Með vísan til heimildar í 2. gr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra, sbr. breyting á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017, er samþykkt að umsóknin verði afgreidd sem umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, sbr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Bæjarráð Garðabæjar
03
48. (1765). fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að ekki liggur fyrir staðfesting á samþykkt deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar og er afgreiðslu umsóknarinnar frestað.