Beint í efni

Samkeppni um Miðsvæði á Álftanesi

Málsnúmer 1609138

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir niðurstöðu samkeppni um miðsvæði Álftaness. Höfundar vinningstillögu voru Andersen & Sigurdsson Arkitekter í Kaupmannahöfn. Fljótlega verður hafist handa við deiliskipulagsgerð sem byggir á vinningstillögunni og verður það í verkahring skipulagsnefndar að móta þá tillögu í samvinnu við höfun verðlaunatillögunnar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (1789). fundur

Lögð fram niðurstaða dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

1. sæti Andersen&Sigurðsson - arkitektar Kaupmannahöfn kr. 4.000.000
2. sæti Hildigunnur Haraldsdóttir o.fl. kr. 2.500.000
Athyglisverð tillaga Dagný Bjarnadóttir o.fl. kr. 500.000

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Andersen&Sigurðsson - arkitekta um vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness og vísar til tillögunni til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

22. (1788). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og gerði grein fyrir tillögum sem bárust í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Niðurstöður dómnefndar verða kynntar með opnun sýningar í anddyri íþróttamiðstöðvar Álftaness, kl. 16:00, fimmtudaginn 15. júní 2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. (809). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að skipa Gísli Rafn Guðmundsson, borgarhönnuð, Fífurima 12, Reykjavík í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness í stað Guðmundar Kristjáns Jónssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í dómnefnd vegna anna.

Bæjarráð Garðabæjar

05

13. (1779). fundur

Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði til að Gísli Rafn Guðmundsson, borgarhönnuður taki sæti Guðmundar Kristjáns Jónssonar í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness, en Guðmundur Kristján hefur beðist lausnar frá setu í dómnefnd vegna anna.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu.

Bæjarráð Garðabæjar

06

7. (1773). fundur

Bæjarráð samþykkir keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness, sbr. 6.gr. samnings Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um samkeppnishald.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram til kynningar tillaga að keppnislýsingu sem dómnefnd í samkeppni um deiliskipulag Miðsvæðis á Álftanesi hefur samþykkt. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

08

4. (1770). fundur

Í tillögunni er lagt til að hækka heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag miðsvæðis Álftaness verði hækkað og verði ekki lægra en kr. 6.000.000 eins og í fyrri samkeppni.

Bæjarráð samþykkir að heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag samkvæmt samningi við Arkitektafélag Íslands verði kr. 7.000.000 án vsk og skulu fyrstu verðlaun ekki vera lægri en kr. 4.000.000.

Bæjarráð Garðabæjar

09

48. (1765). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og Ísb- fasteigna ehf. um samstarf við framkvæmdasamkeppni og gerð nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.

Bæjarráð samþykkir að heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag samkvæmt samningi við Arkitektafélag Íslands verði kr. 5.000.000 án vsk og skulu fyrstu verðlaun ekki vera lægri en kr. 2.500.000.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

17. (800). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

17. (800). fundur

Bæjarstjórn samþykkir skipun fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

17. (800). fundur

Bæjarstjórn samþykkir skipun fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarráð Garðabæjar

13

43. (1760). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd framkvæmdasamkeppni um nýtt skipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar, formaður nefndarinnar.
Guðmundur Kristján Jónsson, með prófgráðu í skipulagsfræðum.
Bjargey Björgvinsdóttir, arkitekt FAÍ, tilnefnd af Íslandsbanka.
Indro Indriði Candi, arkitekt FAÍ , tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands.
Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og skipulagsfræðingur, tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands.

Bæjarráð Garðabæjar

14

40. (1757). fundur

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Arkitektafélag Íslands um opna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag á miðsvæði Álftaness.

Bæjarráð Garðabæjar

16

38. (1755). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning við Arkitektafélag Íslands um opna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag á miðsvæði Álftaness.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

13. (796). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir að efna til framkvæmdasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Skipa skal fimm manna dómnefnd vegna samkeppninnar og skal hún skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur fulltrúum frá Arkitektafélagi Íslands. Einn fulltrúi Garðabæjar skal skipaður samkvæmt tilnefningu Íslandsbanka sem er landeiganda að hluta.
Dómnefndin skal semja keppnislýsingu og gera nánari afmörkun á skipulagsvæðinu.“

Greinargerð.
Á árinu 2008 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftaness nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Samkvæmt skipulaginu átti að byggja um 300 íbúðir á svæðinu ýmist sem fjölbýlishús eða sérbýli í raðhúsum eða klasabyggingum.
Þá gerði skipulagið ráð fyrir opinberum byggingum fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins ásamt verslun og blandaðri þjónustu. Einnig voru afmörkuð svæði fyrir náttúru- og menningarsetri, hóteli, ráðstefnu- og ferðamannaþjónustu.
Við sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar hafa forsendur breyst sem kalla á að endurskoða gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Við þá endurskoðun er rétt að gera nánari afmörkun á svæðinu m.a. með því að skipulagsvæðið nái einnig til lands við Kirkjubrú.
Lagt er til að það verði gert með opinni framkvæmdasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands þar sem leiðarljós verður að leggja grunn að metnaðarfullri byggð fyrir fjölskyldufólk ásamt því að tryggja að umhverfið beri einkenni byggðar á Álftanesi „sveit í borg“.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.

Bæjarráð Garðabæjar

18

35. (1752). fundur

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að efna til framkvæmdasamkeppni um endurskoðun deiliskipulag miðsvæðis Álftaness og nálægðra svæða. Samkeppnin skal vera í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og Íslandsbanka sem er eigandi um 3,48 ha lands á svæðinu.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa tillögu til afgreiðslu í bæjarstjórn um að efna til framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Fylgiskjöl