13. (1779). fundur
13. (1779). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
04.04.2017
Kl. 08:00 - 08:55
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Engimýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Þórissyni, kt. 050676-5799, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Engimýri 2.
02
Bréf Asker kommune varðandi vinabæjarmót í júní 2018.
Fyrir tekið bréf um boð á vinabæjarmót sumarið 2018.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
03
Ársreikningur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2016.
04
Bréf heilbrigðiseftirlitsins um ársreikning og ársskýrslu 2016, dags. 30.03.17.
05
Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um fornleifarannsóknir og -skráningar.
06
Afgreiðsla leikskólanefndar á erindi leikskólastjóra um fjölgun starfsdaga.
Lögð fram og vísað til fræðslu- og menningasviðs.
Fylgiskjöl
07
Auglýsing Minjastofnunar um styrki til að undirbúa tillögur að verndarsvæði í byggð.
08
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 306. mál., dags. 28.03.17.
09
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um umferðarlög (bílastæðagjöld), 307. mál., dags. 28.03.17.
10
Drög að skilmálum vegna sölu á byggingarrétti lóða við Brúnás og Brekkuás.
Lagðir fram og ræddir.
Afgreiðslu frestað.
11
Bréf UMF Stjörnunnar um leyfi fyrir uppsetningu á auglýsingaskiltum, dags. 21.03.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs til nánari skoðunar.
Fylgiskjöl
12
Bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð, ódags.
13
Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna þjóðlendu í Leiðarenda, dags. 24.03.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
14
Minnisblað Vegagerðarinnar um sjóvarnir á Álftanesi, dags. 22.02.17.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir minnisblaði um sjóvarnir en unnið er að sjóvörnum á Álftanesi í samstarfi með Vegagerðinna.
Fylgiskjöl
15
Tilnefning á fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði til að Gísli Rafn Guðmundsson, borgarhönnuður taki sæti Guðmundar Kristjáns Jónssonar í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness, en Guðmundur Kristján hefur beðist lausnar frá setu í dómnefnd vegna anna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu.