23. (1789). fundur
23. (1789). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
20.06.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Akrabraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Festi-fasteignum ehf., kt. 581113-1100 leyfi til að byggja verslunarhúsnæði á lóðinni við Akrabraut 1.
María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
02
Hofsstaðabraut Lundaból - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar, kt. 570169-6109 leyfi til að rífa elstu álmu leikskólans Lundabóls og byggja nýja á sama stað.
03
Smáraflöt 30 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrönn Róbertsdóttur, kt. 260373-4639 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Smáraflöt 30.
04
Haukanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Laugum ehf., kt. 631098-2079, leyfi fyrir tæknirými í kjallara húss í byggingu við Haukanes 22.
05
Sunnuflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ásgeiri Helga Reykfjörð Gylfasyni, kt. 220182-4529 leyfi fyrir stækkun anddyris við núverandi einbýlishús að Sunnuflöt 22.
06
Niðurstöður dómnefndar um samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Lögð fram niðurstaða dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
1. sæti Andersen&Sigurðsson - arkitektar Kaupmannahöfn kr. 4.000.000
2. sæti Hildigunnur Haraldsdóttir o.fl. kr. 2.500.000
Athyglisverð tillaga Dagný Bjarnadóttir o.fl. kr. 500.000
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Andersen&Sigurðsson - arkitekta um vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness og vísar til tillögunni til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.
07
Reglur um tímabundna leikskóladvöl.
Bæjarráð samþykkir reglur um tímabundna leikskóladvöl.
María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
08
Bréf Lex lögmannsstofu um stækkun á bensínstöð Costco samkvæmt heimild í deiliskipulagi, dags. 12.06.17.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi Costco Wholesale Iceland ehf. til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt verði tækni- og umhverfissviði falið að skoða möguleika á breikkun vegar við aðkomu að bensínstöð.
Fylgiskjöl
09
Bréf SSH um ný samningsdrög vegna mögulegs samstarfs um Fluglestina, dags. 14.06.17.
Bæjarráð samþykkir aðild að breyttum samstarfsamningi um verkefnið „Fluglestin“, enda verði samningurinn samþykktur af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum.
Fylgiskjöl
11
Erindi UMF Stjörnunnar varðandi auglýsingaskilti í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að skilti UMF-Stjörnunnar í Vetrarmýri verði breytt í LED-skilti enda verði farið eftir leiðbeiningum bæjarverkfræðings um að styrkleiki lýsingar verði hófstilltur og glýjulaus. Þá skal þess gætt að birtustig valdi ekki óþægindum gagnvart umferð og næsta nágrenni.
Fylgiskjöl
12
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir, 414. mál., dags. 16.06.17.
13
Drög að samningi um styrk til að gera bílastæði við upphaf gönguleiðar á Búrfell.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Fylgiskjöl
14
Bréf Félags íslenskra landslagsarkitekta varðandi skipun dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts, dags. 15.06.17.
Í bréfinu er vakin athygli á mikilvægi þess, að mati félagsins, að þess verði gætt að leitað verði eftir sérþekkingu landslagsarkitekta við mat á tillögum í samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts.
Bæjarráð vísar bréfinu til dómnefndar um samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts.
Fylgiskjöl
15
Endurskoðun reglna um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á reglum um greiðslur til dagforeldra með gildistíma frá 01.03.2017.