Haukanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (1789). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Laugum ehf., kt. 631098-2079, leyfi fyrir tæknirými í kjallara húss í byggingu við Haukanes 22.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
11. (813). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar á kjallararými húss í byggingu við Haukanes 22.
Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
22. (1788). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar á kjallararými húss í byggingu við Haukanes 22.
Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem gert er ráð fyrir lítillega stækkun rýmis í kjallara. Deiliskipulag er ekki í gildi og því hlýtur byggingarleyfisumsókn meðhöndlun skv. 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.msl.3.mgr.44.gr. sömu laga þar sem að breytingin varða ekki grenndarhagsmuni. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi fyrir umræddu rými verði veitt.
Bæjarráð Garðabæjar
05
7. (1773). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Laugum ehf., kt. 631098-2079 leyfi fyrir innri breytingum einbýlishússins að Haukanesi 22.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
17. (800). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Haukanesi 22 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins. Ingvar Arnarson situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
08
44. (1761). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Haukanes 22 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
16. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem gert er ráð fyrir stækkun rýma neðanjarðar. Skipulagsnefnd fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.msl.3.mgr.44.gr. Skipulagslaga þar sem að breytingin varða ekki grenndarhagsmuni.