7. (1773). fundur
7. (1773). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.02.2017
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1611204
01
Ársreikningur Garðabæjar 2016 - meðferð gatnagerðargjalda.
Á fund bæjarráðs mættu Magnús Jónsson, endurskoðandi og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og kynntu minnisblað um reikningsskilaaðferð við tekjufærslu gatnagerðagjalda við gerð ársreiknings fyrir árið 2016.
Málsnúmer 1512329
02
Hagaflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Auði Stefánsdóttur, kt. 061269-3639 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Hagaflöt 22.
Málsnúmer 1608318
03
Haukanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Laugum ehf., kt. 631098-2079 leyfi fyrir innri breytingum einbýlishússins að Haukanesi 22.
Málsnúmer 1605408
04
Mávanes 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gárungunum ehf., kt. 660196-2189 leyfi fyrir innri breytingum við núverandi einbýlishús að Mávanesi 7.
Málsnúmer 1702193
05
Bréf íbúa að Hrísmóum 13 um skipulag á Garðatorgi, dags. 12.02.17.
Lagt fram bréf íbúa við Hrísmóa 13 þar sem gerðar eru athugasemdir við kynningu á frumtillögum breytinga á skipulagi bygginga við Garðatorg 1.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1702181
06
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga, dags. 10.02.17.
Lagt fram.
Málsnúmer 1702192
07
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um framboð til stjórnar, dags. 10.02.17.
Málsnúmer 1702200
08
Bréf Alzheimersamtakanna um styrk, dags. 07.02.17.
Bæjarráð vísar bréfin til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1702250
09
Erindi félags ábyrgra hundaeigenda um örmerkingar hunda, dags. 15.02.17.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til heilbrigðisnefndar og óskar eftir upplýsingum um fyrirkomulag á eftirliti með óskilahundum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605183
10
Drög að samningi við UMFÁ um rekstur íþróttavalla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610112
11
Garðabær - þjónustukönnun 2016
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2016 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda ásamt því að til setja á fót rýnihópa til að greina niðurstöður í einstaka málaflokkum.
Málsnúmer 1702201
12
Bréf HB og SGÓ um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 08.02.17.
Bæjarráð telur eigi skilyrði til að verða við erindi um niðurfellingu fasteignagjalda á grundvelli reglna Garðabæjar um lækkun eða niðurfellingu fasteigaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Málsnúmer 1611189
13
Samþykkt um laun bæjarfulltrúa
Bæjarstjóri kynnti tillögu að samþykkt um laun bæjarfulltrúa.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1609138
14
Tillaga að keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Bæjarráð samþykkir keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness, sbr. 6.gr. samnings Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um samkeppnishald.
Málsnúmer 1603319
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Ásgarðs.
Lögð fram.
Málsnúmer 1612063
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi gerð lýsingar vegna deiliskipulags lóðar við Hörgatún 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við að lóðarhafi hefji vinnu við gerð lýsingar á vegna endurskoðun deiliskipulags fyrir lóðina að Hörgartúni 2, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á grundvelli lýsingarinnar verður síðan tekin afstaða til erindis um að heimila lóðarhafa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinar, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1608251
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna viðbyggingar á lóðinni við Súlunes 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Súlunes 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1611188
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna viðbyggingar á lóðinni við Sunnuflöt 22
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi hús að Sunnuflöt 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1611187
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar um fyrirspurn vegna breytinga á húsinu við Breiðás 11.
Lögð fram.
Málsnúmer 1702223
20
Afgreiðsla skipulagsnefndar um verkefnalýsingu og breytingu á aðalskipulagi vegna Borgarlínu
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1702066
21
Afgreiðsla skipulagsnefndar um verkefnalýsingu og breytingu á svæðisskipulagi vegna Borgarlínu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu fyrir Borgarlínu vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701395
22
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á aðalskipulag Reykjavíkur.
Lögð fram.
Málsnúmer 1701306
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs.
Lögð fram.
Málsnúmer 1702280
24
Sumarstörf 2017
Bæjarstjóri kynnti undirbúning auglýsingar um sumarstörf fyrir ungmenni en ráðgert er að auglýsing um störf verði birt í byrjun mars.