Beint í efni

Mávanes 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1605408

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (1773). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gárungunum ehf., kt. 660196-2189 leyfi fyrir innri breytingum við núverandi einbýlishús að Mávanesi 7.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (800). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (800). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Mávanes 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst engin athugasemd. Ingvar Arnarson situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

04

44. (1761). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Mávanes 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst engin athugasemd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

16. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt þar sem að engar athugasemdir hafa borist.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (GVG,SHJ,ÁHJ,SG,AG,JS,SÞ,SE,MG) tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingarreit hússins við Mávanes 7 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tveir greiddu atkvæði á móti. (HJ,GEH)

Bæjarráð Garðabæjar

07

36. (1753). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingareit hússins við Mávanes 7 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

12. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bílageymslu sem fer út 1,92 m fyrir byggingarreit í átt að lóðarmörkum. Lagðir fram uppdrættir sem sýna að eigendur aðliggjandi húsa gera ekki athugasemd við tillöguna.
Meirihluti skipulagsnefndar vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að samþykki eigenda húsa sem grenndarkynning nær til liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Súsanna Vilhálmsdóttir og Gísli Geir Jónsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

12. (795). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Mávanesi 7 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

10

32. (1749). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Mávanesi 7 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 44.gr. Skipulagslaga nr 123/2010. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.

Bæjarráð Garðabæjar

12

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við Mávanes 7.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á íbúðarhúsinu að Mávanesi 7.
Viðbygging nær 2,3 m út fyrir byggingarreit að Mávanesi 9 á 3,8 m kafla. Að örðu leyti er byggingin innan ákvæða deiliskipulags sem í gildi var áður en að það var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þar sem að deiliskipulag Arnarness telst ekki í gildi vísar skipulagsnefnd byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Mávaness 5,9,10 og 12
Gera skal þá breytingu á uppdrætti að gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð eins og deiliskipulag kveður á um.