Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2016 - síðari umræða.

Málsnúmer 1611204

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (809). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2016.

Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2016 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

6. (808). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2016. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.

Á fundinum er lögð fram sundurliðun ársreiknings og skýrsla endurskoðenda.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Til máls tóku:

María Grétarsdóttir (2), Gunnar Einarsson (2), Sturla Þorsteinsson, Almar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1776). fundur

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.

Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2016, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2016 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. mars og síðari umræða 6. apríl 2017.

Bæjarráð Garðabæjar

04

8. (1774). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 1.901.096

Bæjarráð Garðabæjar

05

7. (1773). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Magnús Jónsson, endurskoðandi og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og kynntu minnisblað um reikningsskilaaðferð við tekjufærslu gatnagerðagjalda við gerð ársreiknings fyrir árið 2016.