7. (809). fundur
7. (809). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
06.04.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. mars 2017 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/3 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksútsvar).
María Grétarsdóttir, ræddi 4. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksútsvar).
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., viðauka við fjárhagsáætlun 2017 og 4. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksútsvar).
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
1.1 - 1605502 - Viðauki 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1 kr. 242.000.000 hækkun launa grunnskólakennara
Viðauki 2 kr. 29.300.000 hækkun launa tónlistarkennara
Viðauki 3 kr. 32.700.000 hækkun launa leikskólakennara
Viðauki 4 kr. (200.000.000) lækkun varasjóðs
Viðauki 4 kr. (104.000.000) hækkun staðgreiðslu útsvars
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/3 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Samkvæmt gögnum frá Samtökum iðnaðarins varðandi talningu á íbúðum má sjá að frá árinu 2010 hafa verið í byggingu á ýmsum byggingarstigum á hverju ári í Garðabæ frá 66 íbúðum upp í 644 íbúðir.
Hversu margar íbúðir hvert ár frá árinu 2010 hafa verið keyptar sem fyrsta íbúð kaupenda?
Hver er meðalstærð íbúða í byggingu í Garðabæ á hverju ári frá 2010?“
Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.
Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/4 ´17.
María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., svar við fyrirspurn um fornleifarannsóknir og ? skráningar og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabær hefur greitt 32,6 milljónir króna á s.l. rúmum 6 árum til Ragnheiðar Traustadóttur og fyrirtækis í hennar eigu. Stærst eru þrjú verkefni:
Á árunum 2010 og 2011 rúmar 17 milljónir til fornleifarannsókna í Urriðakoti, 2011 til og með 2016 rúmar 7 milljónir til uppgreftrar og úrvinnslu við Hofsstaði og 2015 og 2016 tæpar 6 milljónir til uppgreftrar og úrvinnslu við Hlið auk annarra fornleifaskráninga á Álftanesi.
Óskað er eftir upplýsingum um á grundvelli hvaða heimilda samningar við Ragnheiði eru gerðir utan innkaupareglna Garðabæjar auk þess sem óskað er eftir aðgengi að gögnum vegna framangreindra þriggja verkefna.“
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða
3.15 - 1609138 - Tilnefning á fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa Gísli Rafn Guðmundsson, borgarhönnuð, Fífurima 12, Reykjavík í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness í stað Guðmundar Kristjáns Jónssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í dómnefnd vegna anna.
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 30/3 ´17.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Hver hefur verið þróunin á tekjuviðmiði vegna sérstakra húsaleigubóta frá því að þær voru teknar upp í Garðabæ árið 2013?“
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna fyrirspurn.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi málefni eldri borgara og sagði frá heimsókn forseta Íslands á Ísafold í dag.
Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna fyrirspurn.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 21/3 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 30/3 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerðir stjórnar SSH frá 13/2, 6/3 og 13/3 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs með vísan til 3. tl., fg frá 13/2 ´17, sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið og sagði frá fundi sem haldinn var í dag með fulltrúum fyrirtækja við Garðatorg.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, ræddi sama mál.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17/3 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi málefni Strætó bs. og sagði frá fundi stjórnar með eigendavettvangi byggðasamlagsins.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 24/3 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 15. tl., fyrirkomulag um flokkun á heimilsúrgangi. Þá sagði Sturla frá vinnu við hagræðingu í rekstri Sorpu bs.
Fundargerðin er lögð fram.
14
Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi
Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar fylgdi úr hlaði tillögu til ráðherra um að Garðahverfi verði verndarsvæði í bygg.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við mennta- og menningarmálaráðherra að byggðin í Garðahverfi verði gerð að verndarsvæði samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Tillögunni fylgir greinargerð þar sem útmörkum svæðisins er lýst ásamt því sem fjallað er um varðveislugildi byggðarinnar og skilmála um vernd og uppbyggingu innan svæðisins. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti til að íbúum og öðrum sem hagsmuna eiga að gæta gefist kostur á að gera athugasemdir eða koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Jafnframt skal halda íbúafund á Garðaholti. Frestur til að gera athugasemdir skal vera a.m.k. sex vikur.“
María Grétarsdóttir situr hjá.
15
Ársreikningur Garðabæjar 2016 - síðari umræða.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2016.
Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2016 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.
Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.