Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 4/4 ´17.

Málsnúmer 1703050F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (809). fundur

María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., svar við fyrirspurn um fornleifarannsóknir og ? skráningar og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Garðabær hefur greitt 32,6 milljónir króna á s.l. rúmum 6 árum til Ragnheiðar Traustadóttur og fyrirtækis í hennar eigu. Stærst eru þrjú verkefni:
Á árunum 2010 og 2011 rúmar 17 milljónir til fornleifarannsókna í Urriðakoti, 2011 til og með 2016 rúmar 7 milljónir til uppgreftrar og úrvinnslu við Hofsstaði og 2015 og 2016 tæpar 6 milljónir til uppgreftrar og úrvinnslu við Hlið auk annarra fornleifaskráninga á Álftanesi.
Óskað er eftir upplýsingum um á grundvelli hvaða heimilda samningar við Ragnheiði eru gerðir utan innkaupareglna Garðabæjar auk þess sem óskað er eftir aðgengi að gögnum vegna framangreindra þriggja verkefna.“

Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 12. tl., bréf Bón og þvottastöðvarinnar um lóð fyrir bílaþvottastöð.

Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða