Beint í efni

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/11 ´17.

Málsnúmer 1701412

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (821). fundur

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (819). fundur

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., verslun með drykkjarvörur við Kauptún 3 og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Samkvæmt frétt í Garðapóstinum og samkvæmt leyfisveitingu heilbrigðisnefndar frá 30. október hefur ÁTVR fengið leyfi til 12 ára til að reka vínsölu í Kauptúni 3, Garðabæ.
Það er fagnaðarefni að vínbúð skuli opna að nýju í Garðabæ eftir margra ára fjarveru. Garðabær er sjötta stærsta sveitarfélag landsins og er eitt fárra sveitarfélaga sem hefur látið fara fram sérstaka íbúakosningu um hvort heimila eigi rekstur vínbúða í sveitarfélaginu.
Þetta vekur nokkra furðu enda hefur ekki borist erindi til bæjarsins um leyfi til áfengissölu samkvæmt 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998, svonefndra áfengislaga.
ÁTVR rak fyrir mörgum árum vínbúð í Garðabæ að Garðatorgi en lokaði henni einhliða án samráðs eða samvinnu við bæjarstjórn Garðabæjar. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á árinu 2003 að veita ÁTVR leyfi til reksturs vínbúðar í Garðabæ og var leyfið bundið skilyrði um staðsetningu við Garðatorg.
Samkvæmt 11. gr. áfengislaga, skal leita álits skipulagsnefndar sveitarfélaga varðandi rekstur áfengisútsölu í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn skal rökstyðja ákvörðun sína og gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem ráða ákvörðun um áfengisútsölu í sveitarfélagi.
Í 2. mgr. 11. gr. áfengislaga kemur fram að sveitarstjórn sé heimilt að binda veitingu leyfis til rekstur útsölustaðar áfengis skilyrðum um staðsetningu verslunar, afgreiðslutíma og önnur málefnaleg atriði.
Bæjarstjórn Garðabæjar beinir því til ÁTVR að sækja um leyfi fyrir opnun vínbúðar í Kauptúni þar sem leyfi var áður bundið við rekstur vínbúðar að Garðatorgi.“

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (817). fundur

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

13. (815). fundur

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

12. (814). fundur

María Grétarsdóttir, ræddi dagskrárlið 1.1.2 niðurif húss og vakti athygli á ósamræmi í texta bókunar.

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

10. (812). fundur

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., starfsleyfi og vakti athygli á fjölda umsókna um heimagistingu.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

8. (810). fundur

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

7. (809). fundur

Fundargerðin er lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

5. (807). fundur

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi frumvarp til laga um verslun með áfengi, tóbak ofl. sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Guðrún vakti athygli á samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að mæla gegn samþykkt frumvarpsins og ræddi þann möguleika að taka málið á dagskrá í bæjarstjórn Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

3. (805). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi starfsleyfi fyrir heimagistingu.

Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.