Beint í efni

17. (819). fundur

02.11.2017
Bæjarstjórn Garðabæjar

17. (819). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

02.11.2017

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. október 2017 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1710042F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 24/10 ´17.

Jóna Sæmundsdóttir, og ræddi 13. tl., tillögu Bjartrar framtíðar og Fólksins í bænum um frestun á erindi um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu. Jóna lagði fram tillögu um að bæjarstjóra verði falið í samráði við umhverfisnefnd að boða til opins fundar í nóvember með leyfisumsækjanda og öðrum hagsmunaaðilum um málið.

María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi sama mál.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.

Tillaga um að halda opin fund um Lyklafellslínu samþykkt samhljóða.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1710048F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/10 ´17.

Fundargerðin sem er 1 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1710051F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 31/10 ´17.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 5. tl., bréf íbúa á Hleinum varðandi samþykkt á breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.

María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., bréf íbúa á Hleinum varðandi samþykkt á breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 5. tl.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1710021F

04

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 12/10 ´17.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun

María Grétarsdóttir, ræddi 3. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 3. tl. dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710035F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 18/10 ´17.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., heilsuræktarstöð í Ásgarði.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., heilsuræktarstöð í Ásgarði.

María Grétarsdóttir, ræddi 2. tl., heilsuræktarstöð í Ásgarði.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi að nýju 2. tl., heilsuræktarstöð í Ásgarði.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710043F

06

Fundargerð leikskólanefndar frá 25/10 ´17.

Viktoría Jensdóttir, kvaddi sér hljóðs og sagði almennt frá fundi leikskólanefndar sem haldinn var sem opinn fundur nefndarinnar.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., ályktun Félags stjórnenda í leikskólum um stöðu leikskólabarna.

Viktoría Jensdóttir, ræddi 2. tl., ályktun Félags stjórnenda í leikskólum um stöðu leikskólabarna.

Gunnar Einarsson, ræddi opin fund leikskólanefndar og starfmannamál í leikskólum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710034F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 24/10 ´17.

Viktoría Jensdóttir, ræddi 1. tl. menntadaginn í Garðabæ og lýsti ánægju með hvernig til tókst.

María Grétarsdóttir, ræddi 4. tl., ráðningu skólastjóra Urriðaholtsskóla.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., ráðningu skólastjóra.

María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 4. tl., ráðningu skólastjóra Urriðaholtsskóla.

Gunnar valur Gíslason, ræddi 4. tl., ráðningu skólastjóra Urriðaholtsskóla.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., menntadaginn í Garðabæ og 4. tl., ráðningu skólastjóra Urriðaholtsskóla.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701412

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/10 ´17.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., verslun með drykkjarvörur við Kauptún 3 og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Samkvæmt frétt í Garðapóstinum og samkvæmt leyfisveitingu heilbrigðisnefndar frá 30. október hefur ÁTVR fengið leyfi til 12 ára til að reka vínsölu í Kauptúni 3, Garðabæ.

Það er fagnaðarefni að vínbúð skuli opna að nýju í Garðabæ eftir margra ára fjarveru. Garðabær er sjötta stærsta sveitarfélag landsins og er eitt fárra sveitarfélaga sem hefur látið fara fram sérstaka íbúakosningu um hvort heimila eigi rekstur vínbúða í sveitarfélaginu.

Þetta vekur nokkra furðu enda hefur ekki borist erindi til bæjarsins um leyfi til áfengissölu samkvæmt 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998, svonefndra áfengislaga.

ÁTVR rak fyrir mörgum árum vínbúð í Garðabæ að Garðatorgi en lokaði henni einhliða án samráðs eða samvinnu við bæjarstjórn Garðabæjar. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á árinu 2003 að veita ÁTVR leyfi til reksturs vínbúðar í Garðabæ og var leyfið bundið skilyrði um staðsetningu við Garðatorg.

Samkvæmt 11. gr. áfengislaga, skal leita álits skipulagsnefndar sveitarfélaga varðandi rekstur áfengisútsölu í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn skal rökstyðja ákvörðun sína og gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem ráða ákvörðun um áfengisútsölu í sveitarfélagi.

Í 2. mgr. 11. gr. áfengislaga kemur fram að sveitarstjórn sé heimilt að binda veitingu leyfis til rekstur útsölustaðar áfengis skilyrðum um staðsetningu verslunar, afgreiðslutíma og önnur málefnaleg atriði.

Bæjarstjórn Garðabæjar beinir því til ÁTVR að sækja um leyfi fyrir opnun vínbúðar í Kauptúni þar sem leyfi var áður bundið við rekstur vínbúðar að Garðatorgi.“

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1702023

09

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 17/10 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701135

10

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/10 ´17.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., vetnisverkefnið.

María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., vetnisverkefnið.

Gunnar valur Gíslason, ræddi að nýju 1. tl.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 1. tl.,

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701401

11

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 27/10 ´17.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 6. tl., framlengingu á samningi við Sorpstöð Suðurlands. Þá spurði Guðrún Elín um stöðu mála varðandi plastssöfnun

Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál og sagði frá stöðu mála varðandi plastssöfnun

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1611104

12

Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi.

Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins með vísan til samþykktar samkvæmt 1. tl. fundargerðarinnar um að boðað verði til opins fundar með hagsmunaaðilum um málið.

Málsnúmer 1707051

13

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018 - 2021. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

María Grétarsdóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.


Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:

2018 2019 2020 2021

Tekjur: 14.374.600 14.604.600 14.849.600 15.109.600

Gjöld: 13.148.945 13.423.959 13.740.693 14.071.676

Niðurstaða án fjármagnsliða:

1.225.655 1.180.641 1.108.907 1.037.924

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

(680.774) (478.094) (422.034) (420.340)

Rekstrarniðurstaða 544.881 702.547 686.873 617.584

Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018 - 2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.