10. (812). fundur
10. (812). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
01.06.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Einnig sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. maí 2017 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1705314
01
Kosning forseta bæjarstjórnar og tveggja varaforseta
Tillaga kom fram um Jónu Sæmundsdóttur, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga kom fram um Almar Guðmundsson, sem 1. varaforseta. Tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga kom fram um Sturla Þorsteinsson, sem 2. varaforseta. Tillagan samþykkt samhljóða.
Gunnar Valur Gíslason, óskaði nýjum forseta til hamingju og velfarnaðar í starfi um leið og hann þakkaði bæjarfulltrúum gott samstarf.
Jóna Sæmundsdóttir, tók við stjórn fundarins. Jóna þakkaði bæjarfulltrúum traustið og sagðist hlakka til að takast á við hlutverkið.
Málsnúmer 1705313
02
Kosning fimm fulltrúa í bæjarráð
Fyrir fundinum lá tillaga um kosningu á eftirfarandi aðilum í bæjarráð.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, varaformaður, Sigurður Guðmundsson, Guðrún Elín Herbertsdóttir og María Grétarsdóttir.
Varamenn taka sæti í bæjarráði í þeirri röð sem þeir skipa sama lista og aðalfulltrúar.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1705315
03
Tilnefning áheyrnarfulltrúa í bæjarráð
Samfylkingin tilnefnir Steinþór Einarsson, sem áheyrnarfulltrúa í bæjarráð.
Málsnúmer 1705035F
04
Fundargerð bæjarráðs frá 23/5 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., erindi SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna og greindi frá jákvæðri umfjöllun um erindið á fundi fjölskylduráðs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar 2017 og gerði grein fyrir tilnefningu Péturs Jóhanns Sigfússonar sem bæjarlistamanns árið 2017 sem kunngjörð var á menningaruppskeruhátíð menningar- og safnarnefndar. Þá sagði Gunnar Valur frá að við það tækifæri voru veittar heiðursviðurkenningar til Albínu Thordarson, arkitekts, Steinars J. Lúðvíkssonar, rithöfundar og Hannesar Péturssonar, skálds.
Þá ræddi Gunnar Valur 5. tl., bréf Strætó bs. varðandi beiðni um umsögn sveitarfélaga um lengri þjónustutíma strætisvagna.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar og 1. tl., opið bókhald Garðabæjar.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., opið bókhald Garðabæjar, 10. tl., erindi SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna og 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 13. tl., greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1705046F
05
Fundargerð bæjarráðs frá 30/5 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., bréf íbúa við Ásbúð varðandi umkvörtun vegna hundahalds og úrræði í því sambandi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., bréf íbúa við Ásbúð varðandi umkvörtun vegna hundahalds og svaraði fyrirspurnum.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., að nýju.
Halldór Jörgensson, ræddi 4. tl., bréf íbúa við Ásbúð varðandi umkvörtun vegna hundahalds og vék almennt að farvegi vegna kvartana og ábendinga bæjarbúa.
Almar Guðmundsson, ræddi, 10. tl., lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og 4. tl., bréf íbúa við Ásbúð varðandi umkvörtun vegna hundahalds.
Fundargerðin sem er 16 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1705032F
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 19/5 ´17.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., fræðslu og sögugöngur.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir að skýrslur varðandi fornleifarskráningar verði gerðar aðgengilegar íbúum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1705027F
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 17/5 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 9. og 10. bekk vorið 2017, 3. tl., tillögu um að ráðstafa arði frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála og 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 9. og 10. bekk vorið 2017 og 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi áherslur í skólamálum og vék m.a. að málefnum Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ og svaraði fyrirspurnum m.a. um fjarvistir starfsmanna.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi skólamál. Í tilefni af umræðu um málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ vakti Steinþór athygli á góðri aðsókn í skólann og fjallaði um húsnæðismál hans.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1705037F
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 23/5 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vakti athygli á að fundur skólanefndar hafi verið opinn. Sigríður Hulda ræddi framsögu gesta sbr. 3. og 4. tl. Þá ræddi Sigríður Hulda, 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
Sturla Þorsteinson, ræddi framsögu gesta, sbr. 3. tl. og 4. tl. og lýsti almennri ánægju með opinn fund skólanefndar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi opinn fund skólanefndar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701412
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/5 ´17.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., starfsleyfi og vakti athygli á fjölda umsókna um heimagistingu.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701401
10
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 12/5 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701182
11
Fundargerð stjórnar SSH frá 8/5 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., borgarlínuna.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., húsnæðismál og lóðaframboð.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701135
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12/5 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1605502
13
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 800.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 3,04% vöxtum. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), með stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 16 01, sbr. útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016.
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 (2018-2020) sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember 2016.