Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 17/5 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (812). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 9. og 10. bekk vorið 2017, 3. tl., tillögu um að ráðstafa arði frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála og 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 9. og 10. bekk vorið 2017 og 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi áherslur í skólamálum og vék m.a. að málefnum Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., fjarvistir og leyfi grunnskólanemenda í Garðabæ og svaraði fyrirspurnum m.a. um fjarvistir starfsmanna.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi skólamál. Í tilefni af umræðu um málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ vakti Steinþór athygli á góðri aðsókn í skólann og fjallaði um húsnæðismál hans.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.