Fundargerð bæjarráðs frá 23/5 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (812). fundur
Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., erindi SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna og greindi frá jákvæðri umfjöllun um erindið á fundi fjölskylduráðs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar 2017 og gerði grein fyrir tilnefningu Péturs Jóhanns Sigfússonar sem bæjarlistamanns árið 2017 sem kunngjörð var á menningaruppskeruhátíð menningar- og safnarnefndar. Þá sagði Gunnar Valur frá að við það tækifæri voru veittar heiðursviðurkenningar til Albínu Thordarson, arkitekts, Steinars J. Lúðvíkssonar, rithöfundar og Hannesar Péturssonar, skálds.
Þá ræddi Gunnar Valur 5. tl., bréf Strætó bs. varðandi beiðni um umsögn sveitarfélaga um lengri þjónustutíma strætisvagna.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar og 1. tl., opið bókhald Garðabæjar.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., opið bókhald Garðabæjar, 10. tl., erindi SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna og 12. tl., bæjarlistamann Garðabæjar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 13. tl., greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.