13. (815). fundur
13. (815). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
07.09.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - 1. varaforseti
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Almar Guðmundsson, varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. ágúst 2017 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1708016F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 22/8 ´17.
Steinþór Einarson, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl.,
Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallarbraut Hafnarfirði.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl.,
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og veitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihóp SSH um Borgarlínu.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um þátttöku í stýrihópi SSH um Borgarlínu.
Málsnúmer 1708021F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 29/8 ´17.
Gunnar Valur Gíslsson, ræddi 2. tl., tillögu dómnefndar á keppnislýsingu í samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., kynningarbréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um málþing um íbúalýðræði
Halldór Jörgensson, ræddi 4. tl., greinargerð Gallup um niðurstöður rýnihópa um þjónustu Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1709001F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 5/9 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2018 ? forsendur og verkferlar, 6. tl., bréf Héraðsdóms Reykjaness varðandi boðun í þinghald um dómkvaðningu matsmanns. Steinþór ræddi í því sambandi um uppbyggingu á Garðatorgi.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Landslaga varðandi framkvæmdir í Hörpulundi 6.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 6. tl., bréf Héraðsdóms Reykjaness varðandi boðun í þinghald um dómkvaðningu matsmanns og ræddi um uppbyggingu á Garðatorgi. Þá ræddi bæjarstjóri 8. tl., bréf Landslaga varðandi framkvæmdir í Hörpulundi 6 og sagði frá fundi með málsaðilum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., bréf Héraðsdóms Reykjaness varðandi boðun í þinghald um dómkvaðningu matsmanns og ræddi í því sambandi um uppbyggingu á Garðatorgi.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1708017F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 24/8 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1708024F
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 30/8 ´17.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., starfsemi Stjörnunnar haustið 2017, 2. tl., lýðheilsugöngur Ferðafélags Ísland og 18. tl., opinn fund ÍTG haustið 2017. Björg greindi frá að á fundinum verði lögð áhersla á að fjalla um skipulag íþróttastarfs fyrir börn og unglinga.
Steinþór Einarsson, ræddi 18. tl. opin fundur ÍTG og spurði um stöðu mála varðandi fjölnota íþróttahús og aðstöðu fyrir líkamsræktarstöð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, svaraði fyrirspurnum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1708012F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/8 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1708018F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 25/8 ´17.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., mengunarmælingar í lækjum og við strandir.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., mengunarmælingar í lækjum og við strandir.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi að nýju 1. tl.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701412
08
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 22/8 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701401
09
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 16/8 ´17.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., minnisblað um árangur verkefnis Kópavogsbæjar um plastssöfnun og sagði frá áætlun í Garðabæ að safna plasti frá og með næstu áramótum í sérstökum pokum sem færu í sorptunnur.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701182
10
Fundargerðir stjórnar SSH frá 13/6 og 14/8 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., fg. frá 14/8 ´17, húsnæðismál og lóðarframboð á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fg. frá 14/8 ´17, Borgarlínan og tengd verkefni.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fg frá 14/8 ´17, Borgarlínan og tengd verkefni.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 1701135
11
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 7/7 og 18/8 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fg. frá 7/7´17, húsnæðismál, 2. tl., fg. frá 7/7´17, ferðaþjónustu fatlaðs fólks, l. tl., fg. frá 18/8 ´17 árshlutauppgjör 2017 og 2. tl., fg. frá 18/8 ´17, forsendur fjárhags- og starfsáætlunar 2018.
Fundargerðirnar lagðar fram.