3. (805). fundur
3. (805). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
02.02.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. janúar 2017 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/1 ´17.
Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 31/1 ´17.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., erindi íbúa á Álftanesi um uppsetningu öryggismyndavéla.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12, tl., erindi íbúa á Álftanesi um uppsetningu öryggismyndavéla.
Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1701300 - Drög að samkomulagi við Hjallastefnuna um rekstur leikskóla.
Bæjarstjórn samþykkir samning við Hjallastefnuna um rekstur leikskóla á Vífilsstöðum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir og Sturla Þorsteinsson viku af fundi við atkvæðagreiðslu um málið.
Fylgiskjöl
2.16 - 1611246 - Listi yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls.
Bæjarráð samþykkir lista yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls.
Fylgiskjöl
2.9 - 1701313 - Drög að samningi Garðabæjar og Vegagerðarinnar um eftirlit og útkallsþjónustu fyrir vetrarþjónustu í Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir samning við Vegagerðina um eftirlit og útkallsþjónustu fyrir vetrarþjónustu í Garðabæ.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 26/1 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., endurskoðun umhverfisstefnu.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 27/1 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., vetrarhátíð, 4. tl., tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Garðabæjar, 5. tl., jazzhátíð og 9. tl., endurskoðun umhverfisstefnu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi almennt um viðburði á vegum menningar ? og safnanefndar og lýsti ánægju með fjölbreytta dagskrá.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/1 ´17.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi starfsleyfi fyrir heimagistingu.
Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 27/1 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi almennt um málefni Sorpu bs.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 20/1 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., niðurstöðu vagnaútboðs, 4. tl., leiðakerfið, 6. tl., rekstrarúttekt.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., leiðakerfið.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 6. tl., rekstrarúttekt.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., leiðakerfið.
Fundargerðin lögð fram.
10
Kosning fulltrúa í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Björgu Fenger, sem aðalfulltrúa og Gunnar Einarsson, sem varafulltrúa, í samstarfsnefnd um Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
11
Tilnefningar á fulltrúum í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Guðrún Elín Herbersdóttir, tók til máls og ræddi tilnefningar í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna eftirfarandi aðila í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Aðalfulltrúar:
Áslaug Hulda Jónsdóttir, Heiðarlundi 7 og Steinþór Einarsson Móaflöt 29.
Varafulltrúar:
Jóhann Steinar Ingimundarson, Heiðarlundi 9 og Guðrún Elín Herbertsdóttir, Birkiholti 6.