Beint í efni

12. (814). fundur

17.08.2017
Bæjarstjórn Garðabæjar

12. (814). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

17.08.2017

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. júní 2017 er lögð fram.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi tillögu um aukningu á strætóferðum á Álftanesi og spurði um kostnað vegna framkvæmdar á tillögunni.

Gunnar Valur Gíslason ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.

Dagskrá

Málsnúmer 1706024F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 20/6 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., niðurstöður dómnefndar um samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og óskaði eftir upplýsingum um gerð samnings og tímaáætlun verkefnisins.

Gunnar Einarsson,bæjarstjóri, ræddi 6 tl., niðurstöður dómnefndar um samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og svaraði fyrispurnum.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., tilnefningu í samráðsnefnd Garðabæjar og Hrafnistu samkvæmt samningi um rekstur hjúkrunarheimilis og ræddi í því sambandi um möguleika á að bjóða upp á hvíldarinnlagnir.

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1706029F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 27/6 ´17.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir Golfskála Oddfellowa og ræddi í því sambandi um hugmyndir um stækkun golfvallarins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi fjögurra ára áætlun um hafnarframkvæmdir og sjóvarnir. Gunnar Valur Gíslason, ræddi einnig hugmyndir um stækkun golfvallar.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1706037F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 4/7 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á aðkomutákni.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., kynningu á aðkomutákni og gerði grein fyrir stöðu mála.

Steinþór Einarsson ræddi að nýju 1. tl., kynningu á aðkomutákni.

Baldur Ó Svavarsson ræddi 1. tl., kynningu á aðkomutákni og 11. tl., bréf Byggingafræðingafélags Íslands varðandi athugasemd um kvöð í söluskilmálum lóða.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 1. tl., Kynningu á aðkomutákni.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi 5. tl., bréf AFA JCDecaux varðandi uppsögn samnings um umsjón með biðskýlum.

Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., bréf AFA JCDecaux varðandi uppsögn samnings um umsjón með biðskýlum.

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1707011F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 11/7 ´17.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 17. tl., afgreiðslu fjölskylduráðs um endurskoðun á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1707015F

05

Fundargerð bæjarráðs frá 18/7 ´17.

Steinþór Einarson, ræddi 13. tl., umsókn í forvali vegna framkvæmda við fjölnotasal fyrir bæjarskrifstofur og spurði um stöðu mála.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi 13. tl., umsókn í forvali vegna framkvæmda við fjölnotasal fyrir bæjarskrifstofur og svaraði fyrirspurn. Þá ræddi bæjarstjóri 6. tl., bréf íbúa við Sunnuflöt varðandi hljóðmön við Reykjanesbraut.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 6. tl., bréf íbúa við Sunnuflöt varðandi hljóðmön við Reykjanesbraut, 8. tl., vináttu í verki ? söfnun í þágu fórnarlamba hamfaranna í Grænlandi og 13. tl., umsókn í forvali vegna framkvæmda við fjölnotasal fyrir bæjarskrifstofur.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Baldur Ó Svavarsson, ræddi að nýju 8. tl., vináttu í verki.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., vináttu í verki.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1707017F

06

Fundargerð bæjarráðs frá 25/7 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um stuðning við uppbyggingu sveitarfélaga á húsnæði fyrir fatlað fólk og 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 6. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um stuðning við uppbyggingu sveitarfélaga á húsnæði fyrir fatlað fólk og 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi. Bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum um stöðu mála.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Þjóðskrár Íslands um fasteignamat 2018.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.

Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1707028F

07

Fundargerð bæjarráðs frá 1/8 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga og 1. tl., minnisblað fræðslu- og menningarsviðs um greiðslur vegna námsgagna nemenda.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Sturla Þorsteinsson, ræddi að nýju 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi að nýju 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi að nýju 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi að nýju 2. tl., erindi Íbúalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga.

Fundargerðin sem er 2 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1708008F

08

Fundargerð bæjarráðs frá 15/8 ´17.

Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., bréf Mílu ehf., um samvinnu við lagningu ljósleiðara í Garðabæ.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., bréf Mílu ehf., um samvinnu við lagningu ljósleiðara í Garðabæ.

Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1707001F

09

Fundargerð fjölskylduráðs frá 3/7 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1706038F

10

Fundargerð skipulagsnefndar frá 4/7 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar og spurði um stöðu mála varðandi breikkun á gatnamótum við Vífilsstaðaveg.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og gerði grein fyrir vinnu við hönnun vegna breikkunar gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Bæjarstjóri sagði frá loforði um fjárveitingu til framkvæmda á næsta ári.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar og gerði nánari grein fyrir hugmyndum um uppbyggingu á Lyngásvæðinu og á hvern hátt hún tengist möguleikum að Hafnarfjarðarvegur verði lagður í stokk.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1707003F

11

Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/7 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701412

12

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/6 ´17.

María Grétarsdóttir, ræddi dagskrárlið 1.1.2 niðurif húss og vakti athygli á ósamræmi í texta bókunar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1702023

13

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 1/6 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701182

14

Fundargerð stjórnar SSH frá 6/6 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1701135

15

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 9/6 og 23/6 ´17.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. fg. frá 9/6 og 23/6 leiðarkerfisbreytingar. Þá ræddi Gunnar Valur 2. tl., fg. frá 9/6 og 4. tl., 23/6 þar sem farið er yfir niðurstöður í dómsmáli.

Sturla Þorsteinsson, ræddi málefni Strætó bs. og hugmyndir um notkun metans fyrir strætisvagna.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1702103

16

Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 12/5 og 23/6 ´17.

Fundargerðirnar lagðar fram.