Fundargerð bæjarráðs frá 25/7 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (814). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um stuðning við uppbyggingu sveitarfélaga á húsnæði fyrir fatlað fólk og 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 6. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um stuðning við uppbyggingu sveitarfélaga á húsnæði fyrir fatlað fólk og 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi. Bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum um stöðu mála.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Þjóðskrár Íslands um fasteignamat 2018.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., bréf eiganda Kirkjubrúar varðandi möguleika á makaskiptum á landi.
Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.