Beint í efni

Fundargerð skipulagsnefndar frá 4/7 ´17.

Málsnúmer 1706038F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (814). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar og spurði um stöðu mála varðandi breikkun á gatnamótum við Vífilsstaðaveg.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og gerði grein fyrir vinnu við hönnun vegna breikkunar gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Bæjarstjóri sagði frá loforði um fjárveitingu til framkvæmda á næsta ári.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar og gerði nánari grein fyrir hugmyndum um uppbyggingu á Lyngásvæðinu og á hvern hátt hún tengist möguleikum að Hafnarfjarðarvegur verði lagður í stokk.

Fundargerðin er lögð fram.