Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 28/3 ´17.

Málsnúmer 1703037F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (809). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

„Samkvæmt gögnum frá Samtökum iðnaðarins varðandi talningu á íbúðum má sjá að frá árinu 2010 hafa verið í byggingu á ýmsum byggingarstigum á hverju ári í Garðabæ frá 66 íbúðum upp í 644 íbúðir.
Hversu margar íbúðir hvert ár frá árinu 2010 hafa verið keyptar sem fyrsta íbúð kaupenda?
Hver er meðalstærð íbúða í byggingu í Garðabæ á hverju ári frá 2010?“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.

Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 13. tl., minnisblað Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um stöðu húsnæðismála og áætlanir sveitarfélaga.

Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða