Greinargerð Strategíu varðandi greiningu og könnun á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa. (Margrét Sanders mætir á fundinn)
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
37. (1803). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Margrét Sanders, ráðgjafi hjá Strategíu og gerði grein fyrir greinargerð um greiningu og könnun á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa.
Bæjarráð vísar greinargerðinni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1782). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta fara fram könnun og greiningu á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (807). fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls.
Steinþór Einarsson, tók til máls.
María Grétarsdóttir, tók til máls.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,SG,SÞ,JS,AG,GEH) samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar með gildistíma frá 1. nóvember 2016. Í samþykktinni kemur fram að viðmiðunarfjárhæð launa verður kr. 831.470. Þrír sitja hjá (HJ,MG,SE).
Bæjarráð Garðabæjar
04
7. (1773). fundur
Bæjarstjóri kynnti tillögu að samþykkt um laun bæjarfulltrúa.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
05
2. (1768). fundur
Bæjarstjóri kynnti niðurstöðu Alþingis að breyta ekki ákvörðun kjararáðs um laun þingmanna en þau hafa verið til viðmiðunar við ákvörðun launa bæjarfulltrúa og fulltrúa í nefndum bæjarstjórnar.
Málið rætt.