Beint í efni

Súlunes 10 - Viðbygging neðan jarðar

Málsnúmer 1608251

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (810). fundur

Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Súlunes 10. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir. María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

Baldur Ó Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (1782). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Súlunes 10. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram byggingaleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa verið gerðar við byggingarleyfisumsóknina.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

5. (807). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Súlunes 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

05

7. (1773). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Súlunes 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á einbýlishúsinu sem gerir ráð fyrir niðurgröfnu rými á baklóð og aðkomu frá framlóð vestan við húsið. Aðkomu að viðbyggingu hefur verið breytt og er hún nú frá bílastæðum. Samþykki nágranna fyrir tillögunni liggur fyrir. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn á svæði án deiliskipulags sbr. 1.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum að Súlunesi 3, 5, 8 og 12 sem og Teistunesi 1.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús að Súlunesi 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

Bæjarráð Garðabæjar

08

38. (1755). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús að Súlunesi 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

14. fundur

Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir niðurgrafinni viðbyggingu sunnan íbúðarhússins að hluta til utan byggingarreits. Viðbyggingin er 200 m2 að grunnfleti. Húsið er 375 m2 að grunnfleti og yrði því eftir stækkun 575 m2. Lóðin er 1.800 m2 að stærð og yrði nýtingarhlutfall lóðar því 0,32 en samkvæmt samþykktu deiliskipulagi er hámarks nýtingarhlutfall 0,45.
Akstursniðurkeyrslur eru samkvæmt grein 4.6. óheimilar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við niðurgrafið rými en hafnar tillögu að akstursniðurkeyrslu að rýminu. Skipulagsnefnd vísar tillögu að niðurgröfnu rými til grenndarkynningar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa 200 m2 geymslu neðanjarðar ofan við húsið með aðkomurampi við vesturhlið hússins. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. Baldur Ó. Svavarsson vék að fundi undir þessum lið.